Samskipti ríkis og kirkju I Þórir Stephensen skrifar 5. nóvember 2015 07:00 Þjóðkirkjan er að grunni til ein elsta skipulagsheild Íslandssögunnar. Allt frá árinu 1000 hafa ríki og kirkja átt samfylgd. En margt breytist. Nú er aðskilnaður ríkis og kirkju mikið í umræðunni. Kirkjan hefur aldrei óskað eftir honum, en samt haft uppi sterkar óskir um sjálfræði. Í raun hefur þannig hugsaður skilnaður þegar staðið í 17 ár. Ég var í nefndinni, sem lauk þessu máli og vegna þeirra, sem um þetta fjalla nú, vil ég reyna að útskýra málið. Forsagan er sú, að kirkjan átti fyrrum stóran hlut jarðeigna landsins. Um siðaskipti voru íslensku klaustrin aflögð og konungur hirti allar eignir þeirra. Um aldamótin 1800 voru jarðeignir biskupsstólanna seldar. Andvirði þeirra rann í ríkisfjárhirsluna, en biskuparnir voru settir á opinber laun. Eftir stóðu jarðir þær, sem voru í eigu kirknanna sjálfra. Þær voru tekjustofn prestanna í landinu. Á þeim byggðist kirkjulegt starf fram yfir 1900. Fljótlega eftir siðaskiptin kom í ljós, að þessar tekjur nægðu ekki. Því var verið að styrkja fátækustu prestaköllin úr konungssjóði og efnameiri prestsembættum. Einnig var prestum fækkað. Undir lok 19. aldar kom í ljós, að þetta fyrirkomulag gat ekki gengið lengur. Þess vegna var gripið til þess ráðs, að kirkjan afhenti ríkinu allar jarðeignir sínar, nema prestssetrin – ekki til eignar –heldur umsjónar. Skyldi ríkið hirða allan arð af þeim, en tók að sér að greiða prestunum föst laun. Þetta var gert 1907.Kirkjujarðasamkomulagið Með tímanum fyrndi yfir þessa gerð og stjórnmálamenn fóru að líta á þessar jarðir sem eign ríkisins. Gekk þetta svo langt, að ráðherrar seldu, án heimildar, afar dýrmætar jarðir á verði, sem hvergi hefði komið til greina í einkageiranum. Þetta varð að stöðva. Nefnd ríkis og kirkju komst að þeirri niðurstöðu, að jarðirnar væru enn eign kirkjunnar og því hefði ríkið engar heimildir haft til að ráðstafa þeim að vild. Var jarðaeignin, bæði seld og óseld, skráð og metin og gert nýtt samkomulag um, að íslenska ríkið eignaðist jarðirnar og tæki að sér að greiða, sem arð af þeirri eign, laun ákveðins fjölda starfsmanna kirkjunnar og annan kostnað, sem tiltekinn var í samningi 10. janúar 1997. Árið eftir tóku gildi s.k. þjóðkirkjulög byggð á kirkjujarðasamkomulaginu. Það er því rangt, að þeir fjármunir, sem kirkjan fær nú frá ríkinu, séu framlag til hennar. Þeir eru að langstærstum hluta arður af yfirteknum eignum sem frá öndverðu var ætlað að standa undir þjónustu kirkjunnar. Með þessu samkomulagi jókst svigrúm kirkjunnar umtalsvert til að stjórna eigin málum. Málin hafa þróast þannig, að forseti Íslands hefur skipað biskupana, en ráðherra hætti að skipa prestana og það vald var fært í hendur biskupi Íslands, enda fara hann, Kirkjuþing og Kirkjuráð nú með völdin á hinu kirkjulega sviði. Prestarnir eru áfram opinberir starfsmenn og hafa réttindi og skyldur sem slíkir. Orðið þjóðkirkja varð til í stjórnarskránni 1874. Í hugum langflestra, sem henni fylgja og þjóna í dag, er hún sjálfstætt trúfélag, sem ræður sínum málum án íhlutunar ríkisvaldsins. Fjárhagsleg samskipti ríkis og þjóðkirkju byggjast svo á gagnkvæmu samkomulagi og skiptum á verðmætum. Kirkjuþing er skipað 29 mönnum, 17 leikum og 12 lærðum. Kirkjuráð er undir forsæti biskups skipað tveimur leikmönnum og tveimur guðfræðingum kosnum af Kirkjuþingi. Ráðherra gegnir tilteknu, lögbundnu hlutverki innan kirkjunnar. Hann fer þar með eftirlitsskyldu, á rétt til setu á Kirkjuþingi með málfrelsi og tillögurétti. Hann hefur t.d. afskipti af starfsemi kirkjugarða, sem tilheyra öllum landsmönnum, og málum þeim tengdum, sem trúlega yrði aldrei hjá komist.Sjálfstætt trúfélag Samkvæmt lögum er þjóðkirkjan sjálfstætt trúfélag. Hún nýtur sjálfræðis gagnvart ríkisvaldinu innan lögmæltra marka. Þjónusta hennar á að vera á landsvísu, öllum tiltæk. Þar kemur einnig til þjónusta við ríkisvaldið um að tryggja skrásetningu staðreynda þannig, að unnt sé að halda til haga og staðreyna tiltekin málefni. Vegna stærðar sinnar og þéttriðins þjónustunets hefur hún verið ríkinu mikilvæg. Starf hennar fyrir fólk í erfiðleikum og neyð á öllum sviðum lífsins, er miklu meira en flesta grunar. Aðkoma forsetans og ráðherra, ásamt stöðu vígðra þjóna kirkjunnar sem opinberra embættismanna, virðast mér nánast einu atriðin, sem nú tengja hana ríkinu. Það fyrirkomulag hefur reynst vel, og því, sem reynslan mælir með, er gott að una. Ég fæ ekki betur séð en að þeir, sem vilja breyta því, geri það mest breytinganna vegna. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Svona getum komið í veg fyrir að Katrín vinni Björn B. Björnsson Skoðun Ég vil óumdeildan forseta Guðrún Jónsdóttir Skoðun Þess vegna er Halla Hrund efst Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir Skoðun Hver á að vera minn forseti? Auður Aþena Einarsdóttir Skoðun Orkan hjá Höllu Hrund Sara Oskarsson Skoðun Vopnið gegn hatri Kristín Sigrún Áss Sigurðardóttir Skoðun Halla Tómasdóttir og Sólskinsdrengurinn Margrét Dagmar Ericsdóttir Skoðun Forseti Íslands – Katrín Jakobsdóttir Guðjón Þórir Sigfússon Skoðun Þjóðhöfðinginn Katrín Sigríður Gísladóttir Skoðun Mér finnst á mig hlustað Tinna Martinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Að kjósa með hjartanu! Ásdís Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Heilt kjörtímabil án árangurs í loftslagsmálum Andrés Ingi Jónsson skrifar Skoðun „Nema í alveg sérstökum tilvikum“ Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Forseti Íslands – Katrín Jakobsdóttir Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Baldur er leiðtogi og mannasættir Karl Ágúst Ipsen skrifar Skoðun Fyrir börnin okkar Gunnar Ingi Valgeirsson skrifar Skoðun Stjórnvöld eru stefnulaus í barna- og fjölskyldumálum Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Halla Hrund fyrir framtíðina Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Halla Tómasdóttir og Sólskinsdrengurinn Margrét Dagmar Ericsdóttir skrifar Skoðun Ferðamálastefna til framtíðar Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Fótbolti og forseti Tómas Ingi Tómasson skrifar Skoðun Taktík. - Fyrir fegurðina og lýðræðið Gunnlaugur Ólafsson skrifar Skoðun Kjósum Baldur fyrir öryggi okkar allra Ragnheiður Hergeirsdóttir skrifar Skoðun Svona getum komið í veg fyrir að Katrín vinni Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Þess vegna er Halla Hrund efst Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Forsetakosning, auðlindir í þágu almennings Gunnar Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Halla Tómasdóttir lætur verkin tala Sigurborg Arnarsdóttir skrifar Skoðun Forsetakosningar: Menningarlegt forræði fjórða valdsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Hver á að vera minn forseti? Auður Aþena Einarsdóttir skrifar Skoðun Halla Hrund – með víðtæka þekkingu á áskorunum samtímans Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri til listnáms í Myndlistaskólanum í Reykjavík fyrir einstaklinga með þroskaskerðingu Björg Jóna Birgisdóttir skrifar Skoðun Vélakaup valdaelítunnar skal að vettugi hafa Ívar Hauksson skrifar Skoðun Báðar eru þær góður kostur, Katrín og Halla Hrund. Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Orkan hjá Höllu Hrund Sara Oskarsson skrifar Skoðun Kjósum Baldur fyrir unga fólkið Brynja Kristín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Náttúrubarnið Katrín Jakobsdóttir Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar Skoðun Mér finnst á mig hlustað Tinna Martinsdóttir skrifar Skoðun Vopnið gegn hatri Kristín Sigrún Áss Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þjóðhöfðinginn Katrín Sigríður Gísladóttir skrifar Skoðun Ég vil óumdeildan forseta Guðrún Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Halla Hrund – með víðtæka þekkingu á áskorunum samtímans Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar
Skoðun Einstakt tækifæri til listnáms í Myndlistaskólanum í Reykjavík fyrir einstaklinga með þroskaskerðingu Björg Jóna Birgisdóttir skrifar
Skoðun Náttúrubarnið Katrín Jakobsdóttir Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar