Nóvemberspá Siggu Kling – Sporðdreki: Kemur fleiru í verk en þig hefi grunað 30. október 2015 09:00
Elsku litríki sporðdrekinn minn. Þegar maður er alveg við það að gefast upp þá kemur kraftaverkið sem leysir vandamálin. Sýndu öðrum hvað þú getur verið sjálfsöruggur þó svo að þér finnist þú alls ekki vera það akkúrat á þessu augnabliki.Þú þarft að sýna mikla þrjósku í ýmsum málum í kringum þig, sýna fram á það að þú takir ekki nei sem svar í nokkru tilfelli. Þú þarft að skipuleggja þig og þó að eitthvað gangi ekki upp þá skiptir það engu máli því þú ert að fara hárrétta leið. Þú átt eftir að ljúka svo mörgu í mánuðinum og þótt þér finnist ekki allt vera skemmtilegt í þessari nóvembergöngu er þetta samt sterkasti mánuðurinn þinn á öllu árinu. Og þú kemur miklu fleiru í verk en þig hefði nokkurn tímann grunað! Þetta tímabil er svipað því að fara í teygjustökk. Það verður mikil spenna og kannski ekki gáfulegt að henda sér í teygjustökk það er eins með lífið, það er kannski ekki allt gáfulegt sem maður gerir en það skapar samt þessa skemmtilegu sögu sem heitir ævisaga! Þú verður svo stórkostlega ánægður með margt sem þú átt eftir að upplifa og þá sérðu að það sem þú ert búinn að leggja á þig var vel þess virði. Þú átt eftir að elska adrenalínkikkið sem lífið er að gefa þér. Og þó þú sért ekki að fara auðveldustu leiðina þá ertu að fara þá skemmtilegustu. Þú getur verið svo ótrúlega sannfærandi, nýttu þér það og sannfærðu þá sem eru í kringum þig um að hjálpa þér að ná þeirri stöðu sem þú vilt vera í, það er ekkert mál fyrir þig, elskan mín. Það er mögnuð ástríða allt í kringum þig og þú getur notað hana bæði til að tengja þig við manneskjur sem þig langar til að tengjast og til þess að hjálpa þér að skína og ná markmiðum þínum. Mottó: Ég elska lífið Frægir sporðdrekar: Dísa í World Class, Helga Braga Jónsdóttir leikkona, Björk Guðmundsdóttir söngkona, Scarlett Johansson leikkona, Whoopie Goldberg leikkona, Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir sjónvarpskona, Emmsjé Gauti rappari.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Gellur fjölmenntu í sumarpartý Ingu Lindar Lífið Ósérhlífinn starfsmaður bjargaði ómvölum frá endurvinnslu Lífið Á spítala eftir samfarir við 583 menn Lífið Eva Laufey og Haraldur selja húsið á Skaganum Lífið „Hæ allir saman, kjósið New Day Will Rise“ Lífið Nadía og Arnar selja fallegt hús í Hafnarfirði Lífið Níu ára toppaði Hvannadalshnjúk og renndi sér niður Lífið Frumsýning á Cannes og gullhamrar Bill Murray: „Nú er ég búin að toppa mig algjörlega“ Lífið „Erum við að reyna fá fólk til þess að vera svikara“ Lífið Iðnaðarmaður ársins 2025 - Elsa er komin í úrslit Lífið samstarf Fleiri fréttir Gimbur borin með svart hjarta á bakinu Eva Laufey og Haraldur selja húsið á Skaganum Gellur fjölmenntu í sumarpartý Ingu Lindar Nadía og Arnar selja fallegt hús í Hafnarfirði „Hæ allir saman, kjósið New Day Will Rise“ „Erum við að reyna fá fólk til þess að vera svikara“ Á spítala eftir samfarir við 583 menn Hjálmar með upplyftandi morgunkveðju Níu ára toppaði Hvannadalshnjúk og renndi sér niður Ósérhlífinn starfsmaður bjargaði ómvölum frá endurvinnslu Kim „loksins“ útskrifuð Frumsýning á Cannes og gullhamrar Bill Murray: „Nú er ég búin að toppa mig algjörlega“ Sigurvegarinn vill banna Ísrael Tilkynna um 29 ný atriði á Iceland Airwaves Rúrik fellur í skuggann á kynþokkafullum Jóni Var hent í ljónagryfjuna þegar hann fór inn á Vog Color Run flytur úr Laugardal og í Kópavog Dunda dömurnar fögnuðu í bongó blíðu Baltasar Kormákur og Ólafur Jóhann saman í Þjóðleikhúsinu Dulúðug hvít andlit: „Nú horfi ég á þetta allt öðruvísi“ Keyptu glæsihús Atlanta-hjónanna á undirverði Eggert Gunnþór og Elsa selja einbýlið Eitt fallegasta hús Reykjavíkur komið á sölu Sagði að hún kæmist aldrei á forsíðu Vogue Bakslag í veikindi Valgeirs Staðalímyndir í sjávarútvegi: „Hvar er maðurinn þinn?“ Landsliðshetjur elta drauminn til Ólafsvíkur Úr klikkaðri kynlífsþrá í alls enga Rikki G og Valdís eiga von á barni „Hélt að við værum að trufla verðandi bónorð hjá öðrum“ Sjá meira