Lífið

Brjálaður Bieber strunsaði af sviðinu eftir aðeins eitt lag - Myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Justin Bieber kom á dögunum til Íslands.
Justin Bieber kom á dögunum til Íslands. vísir
Það fauk heldur betur í Íslandsvininn Justin Bieber í gærkvöldi og strunsaði hann af sviðinu í Osló eftir að hafa aðeins sungið eitt lag á tónleikum.

Bieber varð fyrir því óhappi að hella niður vatni á sviðið í upphafi tónleikanna. Fór hann því sjálfur með handklæði til að þurrka upp eftir sig fremst á sviðinu. Kappinn komst aftur á móti ekki að fyrir spenntum aðdáendum  og það fór fyrir brjóstið á honum.

Bieber strunsaði því af sviðinu og hætti eftir aðeins eitt lag. Tónleikunum var þar með lokið og stóðu mörg þúsund manns eftir með sárt ennið.

Hér að neðan má sjá myndband af atvikinu. 

Bieber hefur sent frá sér útskýringar á því hvað gerðist. Hann hafi verið svefnlaus eftir langa viku.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×