Lífið

Hafa nú þegar sigrað í netkosningu kvikmyndarisans Lionsgate

Guðrún Ansnes skrifar
Hópurinn ætlar sér stóra hluti í kvikmyndagerð enda þykir þeim vanta töluvert upp á þegar kemur að kvenfyrirmyndum í kvikmyndaiðnaðinum.
Hópurinn ætlar sér stóra hluti í kvikmyndagerð enda þykir þeim vanta töluvert upp á þegar kemur að kvenfyrirmyndum í kvikmyndaiðnaðinum. Vísir/Stefán
Extura Production er kvikmyndafyrirtæki sem samanstendur af fimm menntskælingum úr Menntaskólanum í Reykjavík og Menntaskólanum við Hamrahlíð á aldursbilinu sextán og sautján ára, þeim Anastazju S. Glog­owska, Elínu C.H. Ramette, Jönu Katrínu Magnúsdóttur, Melkorku Gunborg Briansdóttur og Stefaníu Stefánsdóttur.

„Við sóttum ekki um að vera með, fengum bara allt í einu skilaboð frá Hunger Games official Instagram um að við værum meðal þeirra fimm sem væru í undanúrslitum í þessari stuttmyndakeppni,“ segir Jana. Lionsgate, hið risavaxna kanadíska framleiðslufyrirtæki, sem meðal annars framleiðir Hunger Games-seríurnar, valdi á dögunum Extura Production áfram í keppninni The Hunger Game Tribute, sem fram fer á heimasíðu fyrirtækisins og verða úrslit kunngjörð þann 31. október í Los Angeles í Bandaríkjunum. Keppir hópurinn í flokki Best original video content.

Kvikmyndagerðarkonurnar hafa sérstakt dálæti á Jennifer Lawrence sem fer með aðalhutverk Hungurleikamyndanna.
Um er að ræða myndina" target="_blank"> 'The 26th Hunger Games'  sem stelpurnar gerðu árið 2013 þegar allar voru enn í grunnskóla, og er í grunninn byggð á hinum geysi­vinsælu kvikmyndum Hunger Games, og hafa stelpurnar svo skapað sínar eigin persónur og aðstæður. Þær sjá alfarið um allt sem kemur kvikmyndagerðinni við, svo sem tökur, klippingar, leikaraval og þar fram eftir götunum. „Okkur er reyndar skutlað af foreldrum þangað sem við þurfum að fara. Við settum myndina á YouTube-síðuna okkar og spáðum svo ekkert meira í það. Áhorfin hlóðust svo bara upp hægt og rólega og við löngu farnar að gera eitthvað annað. Það var svo í síðasta mánuði, sem við fengum allt í einu skilaboð þar sem okkur var tilkynnt að við værum komnar í undanúrslit í þessari keppni,“ segir Jana og skýtur því að, að þar hljóti útsendarar keppninnar að hafa komið auga á verkið þeirra.

Má með sanni segja að þessi skjóta velgengni hafi komið stelpunum nokkuð á óvart. Burtséð frá því að vera óvænt með í keppni, þá eru þær nefnilega að keppa við sumar af fyrirmyndum sínum. „Þarna er til dæmis hópurinn MainstayPro, sem við höfum verið að fylgjast mikið með og verið að skoða hvernig vinnur. Okkur grunaði ekki að við myndum slást við hann um verðlaunasæti á borð við þetta,“ útskýrir Jana, en til glöggvunar má benda á að MainstayPro hefur níutíu þúsund fylgjenda á YouTube en okkar konur hafa fjögur þúsund og fimm hundruð. Aðspurðar um fyrirmyndir segja stelpurnar að skortur sé á konum í kvikmyndagerð en skuli einhver nefndur í þessu samhengi sé það Tim Burton, hann heilli þær allar. „Ég ætla samt að segja að mér finnst stelpurnar í hópnum mínum vera mínar fyrirmyndir eins og staðan er núna,“ laumar Elín að og uppsker mikla kátínu meðal samstarfskvennanna.

Hópurinn þarf að bíða þar til á föstudag eftir úrslitum og verða þessir þrír dagar ef til vill ansi lengi að líða. „Þar sem við getum því miður ekki mætt á verðlaunaafhendinguna, vegna þess að tíminn er of knappur, of dýrt er fyrir okkur að fara og svo erum við náttúrulega í skólanum, þá ætlum við að horfa saman á beint streymi á netinu,“ segir Stefanía og bætir við að þær hafi þó búið þannig um hnúta að fulltrúar hópsins verði á staðnum, en það ku vera vinafólk foreldra einnar úr hópnum. En hvað ef þær sigra, líkt og þær sigruðu í netkosningunni? „Við erum ekkert að velta fyrir okkur að vinna, heiðurinn sem felst í að komast svona langt er alveg nóg,“ segir Melkorka og hópurinn tekur einróma undir. 


Tengdar fréttir

Konur í kvikmyndagerð

Umræða um stöðu og þátt kvenna í kvikmyndagerð hefur verið þó nokkur síðustu misserin. Það er þakkarvert hve konur sem starfa við kvikmyndagerð hafa verið ötular við að benda á það ójafnvægi sem ríkir þegar kemur að hlut kvenna.

Hemsworth boðið hlutverk

Hunger Games-stjörnunni Liam Hemsworth hefur verið boðið aðalhlutverkið í ID Forever, sem er framhald hinnar vinsælu Independence Day sem kom út 1996.

Kvennakvótinn

Það er ekki að sjá að vanbúnaðurinn sé nokkur. Einn þekktasti og áhrifamesti Íslendingurinn í kvikmyndagerð og sjálfur ráðherra málaflokksins hafa báðir lýst yfir vilja til framkvæmda.

Uppistand um konur í kvikmyndum

Í kvöld verður uppistand um konur í kvikmyndum þar sem þær Snjólaug Lúðvíksdóttir og Edda Björgvinsdóttir koma fram ásamt góðum félagsskap.

Launahá Lawrence

Leikkonan Jennifer Lawrence hefur skrifað upp á samning þess efnis að hún fái 20 milljónir Bandaríkjadala fyrir hlutverk sitt í myndinni Passengers.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×