Enski boltinn

Valdes á förum frá Man. Utd

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Valdes í leik með Man. Utd.
Valdes í leik með Man. Utd. vísir/getty
Umboðsmaður markvarðarins Victor Valdes segir að hann muni yfirgefa herbúðir Man. Utd eftir áramót.

Valdes er í frystikistunni hjá Man. Utd síðan hann neitaði að spila fyrir varalið félagsins. Hann hefur ekki spilað fyrir félagið síðan hann kom inn sem varamaður í lokaleik síðasta tímabils.

Spænski markvörðurinn, sem áður lék með Barcelona, hefur verið orðaður við fjölda félaga og þar á meðal Newcastle sem vantar mann þar sem Tim Krul spilar ekki meira í vetur.

Umbinn segir að Valdes muni ekki fara aftur til Spánar en hann afþakkaði boð frá Valencia síðasta sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×