Formúla 1

Lewis Hamilton vann í Japan

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lewis Hamilton jók forskot sitt í stigakeppni ökumanna um sjö stig í dag.
Lewis Hamilton jók forskot sitt í stigakeppni ökumanna um sjö stig í dag. Vísir/Getty
Lewis Hamilton kom fyrstur í mark í japanska kappakstrinum. Liðsfélagi hans, Nico Rosberg varð annar og Sebastian Vettel á Ferrari þriðji.

Hamilton stal forystunni af liðsfélaga sínum strax í ræsingunni. Rosberg tapaði í raun þremur sætum strax í byrjun keppninnar.

„Þeir taka fram úr mér eins og ég sé á GP2 bíl. Þetta er vandræðalegt, mjög vandræðalegt,“ sagði Fernando Alonso í talstöðinni. Tvo hringi í röð missti hann ökumenn fram úr sér á ráskafla brautarinnar.

Daniel Ricciardo og Felipe Massa lentu í samstuði í ræsingunni. Í atvikinu sprungu dekk á báðum bílum. Red Bull átti tvo síðustu bílana í keppninni á tímabili. Red Bull hefur verið á verðlaunapalli í Japan á hverju ári síðan 2006.

Kimi Raikkonen endaði fjórði en á ekki lengur möguleika á að verða heimsmeistari ökumanna 2015.Vísir/Getty
Rosberg gat einbeitt sér að því að elta Hamilton eftir annað þjónustuhlé Vettel. Vettel kom út á brautina eftir þjónustuhléið fyrir aftan Rosberg, sem þá var orðinn annar.

Baráttan Finnanna, Valtteri Bottas og Kimi Raikkonen varð að engu þegar Raikkonen nýtti sér þjónustuhlé til að taka fram úr.

Aðeins einn ökumaður, Felipe Nasr á Sauber kláraði ekki keppnina, hann átti tvo hringi eftir þegar hann hætti keppni. Hann fær þó skráð að hann hafi lokið keppni. Þetta er því einungis fimmta keppnin í sögu Formúlu 1 þar sem allir klára.

Fimm fremstu ökumennirnir í dag röðuðust í sömu sæti og þeir eru í, í stigakeppni ökumanna.

Hér fyrir neðan má finna úrslit helgarinnar á gagnvirku brautarkorti.


Tengdar fréttir

Rosberg: Bíllinn er eins og lest

Nico Rosberg var hæstánægður með ráspól sinn fyrir Mercedes liðið á Suzuka brautinni í morgun. Óhapp Daniil Kvyat undir lok þriðju lotu hafði mikil áhrif á baráttuna. Hver sagði hvað eftir tímatökuna?

Lok, lok og læs hjá Lotus

Lotus liðið kom að lokuðum dyrum á gestamóttöku sinni við Suzuka brautina í Japan. Búnaður liðsins kom einnig á eftir búnaði annarra liða. Japanski kappaksturinn fer fram um helgina.

Nico Rosberg á ráspól í Japan

Nico Rosberg á Mercedes náði ráspól í Japan, liðsfélagi hans, Lewis Hamilton varð annar og Valtteri Bottas á Williams var þriðji.

Romain Grosjean til Haas F1

Romain Grosjean verður kynntur sem annar ökumanna Haas F1 liðsins á þriðjudaginn. Ákvörðun franska ökumannsins kom liði hans, Lotus á óvart, sagði Federico Gastaldi vara liðsstjóri Lotus.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×