Körfubolti

Serbarnir unnu íslenska riðilinn á fullu húsi | Léku sér að Ítölum í dag

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Vísir/Getty
Serbar héldu sigurgöngu sinni áfram í B-riðlinum á Evrópumótinu í körfubolta eftir 19 stiga sigur á Ítölum, 101-82, í dag í óopinberum úrslitaleik um sigurinn í riðlinum.

Serbar unnu þar með alla fimm leiki sína í Berlín og mæta því á svaka siglingu inn í sextán liða úrslitin sem hefjast strax á laugardaginn í Lille í Frakklandi.

Ítalir sem voru búnir að vinna þrjá leiki í röð vita það ekki fyrr en á eftir í hvaða sæti þeir enda í riðlinum. Þeir voru hinsvegar öryggir í sextán liða úrslitin fyrir leikinn.

Milos Teodosic, leikstjórnandi serbneska liðsins, var áfram allt í öllu hjá liðinu alveg eins og í sigrinum á Tyrkjum í gær. Teodosic var með 17 stig og 13 stoðsendingar í gær en 26 stig og 8 stoðsendingar í dag. Serbarnir unnu með 31 stigi þegar hann var inná vellinum.

Nemanja Bjelica, sem virðist hafa verið að spara sig í síðustu leikjum skoraði öll 19 stigin sín í leiknum í seinni hálfleiknum.

Ítalir léku án Marco Belinelli og munaði mikið um það enda hefur hann verið að gera út um síðustu leiki liðsins. Alessandro Gentile var stigahæstur hjá Ítalíu með 19 stig og Andrea Bargnani skoraði 17 stig.

Milos Teodosic skoraði 14 stig á fyrstu sjö og hálfri mínútu leiksins og hjálpaði Serbum að komast í 25-12. Serbar voru síðan 25-19 yfir eftir fyrsta leikhlutann.

Serbar náðu mest 13 stiga forskoti í öðrum leikhlutanum, 47-34, en Ítalir unnu síðustu tvær mínútur hálfleiksins 6-1 og minnkuðu muninn í átta stig fyrir hálfleik, 48-40.

Milos Teodosic var kominn með 19 stig og 5 stoðsendingar í hálfleik og var þá búinn að eigan beinan þátt í tólf af átján körfum serbneska liðsins í hálfleiknum.

Ítalir náðu að fylgja eftir góðum endi á fyrri hálfleik með því að minnka muninn í sex stig í upphafi þess þriðja, 52-46. Serbarnir gáfu þá aftur í og eftir 11-2 sprett á tæpum tveimur mínútum var munurinn orðinn fimmtán stig, 63-48.

Nemanja Bjelica fór í gang í þriðja leikhlutanum og skoraði alls fimmtán stig í leikhlutanum en hann tók ekki skot í fyrri hálfleiknum.  

Alessandro Gentile hélt Ítölum inn í leiknum í þriðja leikhlutanum með því að skora einn 12 stig en Serbar unnu 3. leikhlutann á endanum 28-19 og voru því sautján stigum yfir fyrir lokaleikhlutann, 76-59.

Serbar áttu ekki í miklum vandræðum í fjórða leikhlutanum og frábærir leikmenn liðsins skiptust á flottum tilþrifum. Markviss leikur liðsins mun valda mörgum liðum vandræðum í framhaldinu á mótinu.


Tengdar fréttir

Ísland á 60% af "gömlu“ körlunum

Íslenska karlalandsliðið spilaði í gær fjórða leik sinn á fimm dögum á Evrópumótinu í körfubolta. Mikið álag er á íslenska liðinu sem er það elsta í B-riðlinum




Fleiri fréttir

Sjá meira


×