Fimm til tíu skipulagðir glæpahópar starfi á höfuðborgarsvæðinu Bjarki Ármannsson skrifar 13. september 2015 16:42 Sérsveit ríkislögreglustjóra að störfum. Vísir/Anton
Talið er að fimm til tíu hópar séu virkir á sviði skipulagðrar brotastarfsemi á höfuðborgarsvæðinu, auk þess sem vísbendingar séu um aukin umsvif þeirra hópa á landsbyggðinni. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra um mat á skipulagðri glæpastarfsemi á Íslandi sem birt var fyrir helgi.Í skýrslunni er meðal annars fjallað um skipulagða glæpastarfsemi sem tengist vændi, mansali og fíkniefnasölu og –framleiðslu. Þar segir að öll lögregluumdæmi landsins telji takmarkaða möguleika á frumkvæðisvinnu vegna niðurskurðar á fjárveitingum hefta upplýsingaöflun um starfsemi skipulagðra brotahópa. Almennt sé það mat lögreglunnar á Íslandi að hún sé ekki fær um að halda uppi ásættanlegri frumkvæðislöggæslu. „Íslensku lögreglunni hefur verið sniðinn þröngur stakkur síðustu ár,“ segir í skýrslunni. „Verði svo áfram er sú áhætta fyrir hendi að umfang skipulagðrar brotastarfsemi aukist án viðspyrnu samfélagsins.“ Sérstaklega er vakin athygli á bágri stöðu lögregluumdæma á landsbyggðinni. Í skýrslunni segir að lögregla á landsbyggðinni telji sig almennt ekki færa um að halda uppi „ásættanlegu öryggisstigi“ vegna fjárskorts. „Við mat á stöðu lögreglunnar á landsbyggðinni, einkum með tilliti til frumkvæðislöggæslu, ber að hafa í huga að verkefnum þar fjölgar í takt við aukinn straum ferðamanna,“ segir í skýrslunni. „Honum fylgir til dæmis aukinn fjöldi slysa auk þess sem iðulega fer fram tímafrek og krefjandi leit að týndu fólki. Slíkt kallar á mikla vinnu af hálfu lögreglunnar. Nefna má til samanburðar að nú munu 24 landverðir starfa í Vatnajökulsþjóðgarði en lögreglumenn á Suðurlandi eru alls 34, á svæði sem nær frá Sandskeiði við Bolöldu austur fyrir Höfn í Hornafirði.“
Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira