Formúla 1

FIA íhugar yfirbyggðan ökumannsklefa

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Red Bull hugmyndabíll með yfirbyggðum ökumannsklefa. Hér er yfirbyggingin svipuð þeim sem finnast á orustuþotum.
Red Bull hugmyndabíll með yfirbyggðum ökumannsklefa. Hér er yfirbyggingin svipuð þeim sem finnast á orustuþotum. Vísir/Gran Turismo
Alþjóða akstursíþrótta sambandið FIA íhugar alvarlega að setja reglur um að allir ökumannsklefar verði yfirbyggðir. Rannsóknir hejast á ný í september.

Justin Wilson, fyrrum Formúlu 1 ökumaður lést eftir slys í Indy kappakstri á Pocono brautinni á sunnudag. Wilson fékk brot úr öðrum bíl á hjálminn og ók stjórnlaust á varnarvegg.

Slysið á sunnudag endurvakti umræðu sem síðast fór fram eftir slys Jules Bianchi í japanska kappakstrinum á síðasta ári, Binachi lést fyrr í sumar eftir að hafa legið í dái frá því að slysið varð, 5. október í fyrra.

Felipe Massa varð fyrir höfuðmeiðslum árið 2009 þegar gormur lenti í hjálmi hans á mikilli ferð og rotaði hann.

Henry Surtees lést er laust dekk lenti á hjálmi hans í Formúlu 2 kappakstri árið 2009.

Charlie Whiting, regluvörður FIA. Jean Todt, forseti FIA. Jean-Charles Piette yfirlæknir FIA og Ian Roberts, yfirmaður öryggismála hjá FIA.Vísir/Getty
FIA hefur reynt ýmsar leiðir í gegnum tíðina til að koma í veg fyrir slys af þessu tagi. Fyrstu tilraunir með yfirbyggingu í anda orustuþotna virkuðu ekki, annað hvort splúndraðist yfirbyggingin eða þá að hún skaut aðskotahlutnum hátt í loft upp. Slíkt skapaði mögulega mikla hættu fyrir áhorfendur.

Stærsta vandamálið við yfirbyggða ökumannsklefa er að ná ökumanni úr bílnum ef slys verður. Allar tafir á því að ökumenn komist undir læknishendur geta skipt sköpum.

Gallarnir voru taldir veigameiri en kostirnir. Atvik sem átti sér stað í austurríska kappakstrinum er ágætis dæmi um af hverju niðurstaðan er þessi. Fernando Alonso og Kimi Raikkonen lentu í árekstri og endaði bíll Alonso ofan á bíl Raikkonen. Það hefði tekið mikilvægar mínútur að ná Raikkonen úr bílnum ef ökumannsklefinn hefði verið lokaður.

Nýjasta hugmyndin

Í næsta mánuði hefjast prófanir á nýrri hugmynd um einskonar blöð eða spaða sem myndu standa lóðrétt upp úr yfirbyggingu bílsins, fyrir framan höfuð ökumanns.

Þessi hugmynd var rædd á fundi tæknistjóra Formúlu 1 liða í síðustu viku. Áður en slysið varð um helgina.

„Ég sé fyrir mér að það þetta muni gerast einn daginn. Við munum finna eitthvað til að minnka líkur á því að ökumenn verði fyrir meiðslum,“ sagði Charlie Whiting regluvörður FIA, aðspurður um líklega þróun mála.

Juan Fangio árið 1952.Vísir/Getty
Hefð er ekki hæf sem rök

Hefðin er oft notuð sem rök gegn lokuðum ökumannsklefum. Hefð er ekki tæk sem rök þegar kemur að öryggismálum.

Það þarf að breyta einhverju, ef hefðin hefði alltaf vinningin notuðu ökumenn enn hjálma úr leðri. Það er ef einhver vogaði sér enn að aka Formúlu 1 bíl.

Opnir ökumannsklefar eru líklega alvarlegasti öryggisgalli sem Formúlu 1 bílar nútímans hafa.

Ég viðurkenni að sú hugmynd var í höfði mér að hættan væri hluti af sjarmanum við Formúlu 1. Sú hugmynd hefur gjörbreyst núna á skömmum tíma. Hættan verður alltaf til staðar að einhverju leyti en dauðsföllin eru óásættanlegur hluti af kappakstri.


Tengdar fréttir

Jules Bianchi látinn

Formúlu 1-ökumaðurinn, Jules Bianchi, er látinn, níu mánuðum eftir að hann hlaut alvarleg höfuðmeiðsl í alvarlegu slysi í japanska kappakstrinum í október í fyrra.

Massa reyndist höfuðkúpubrotinn eftir slys

Brasilíumaðurinn Felipe Massa liggur á gjörgæsludeild á spítala í Búdapest eftir slys í tímatökum í dag. Hann skall harkalega á varnarvegg eftir að aðskotahlutur skaust í hjálm hans og rotaði hann.

Óttast var um líf Massa eftir óhapp

Tímatakan fyrir kappaksturinn í Ungverjalandi tók á sig dramatíska mynd þegar Felipe Massa keyrði beint útaf á varnarvegg eftir að hafa fengið brot úr öðrum bíl í hjálminn á fullri ferð.

Bílskúrinn: Baráttan í Belgíu

Lewis Hamilton er nú búinn að tryggja sér ráspólsbikar ársins. Óvæntir atburðir áttu sér stað í belgíska kappakstrinum.

Neyðaraðgerð bjargaði lífi Massa

Brasilíumaðurinn Felipe Massa hefur verið vakinn úr dái, en honum hefur verið haldið meira og minna sofandi síðan hann lenti í óhappi í tímatökum í Búdapest á laugardag. Sérstakur blaðamannafundur var haldin á AEK spítalanum í Búdapest í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×