Innlent

Vilja nýta góð samskipti Ólafs Ragnars og Putin

Samúel Karl Ólason skrifar
Ólafur Ragnar Grímsson og Vladimir Putin árið 2013.
Ólafur Ragnar Grímsson og Vladimir Putin árið 2013. Vísir/Getty
Stjórn Landssambands smábátaeigenda lýsir yfir miklum áhyggjum vegna ákvörðunar Rússa að setja viðskiptabann á vörur frá Íslandi. Sambandið hvetur ríkisstjórn Íslands, sem og stjórnarandstöðu, til þess að „taka höndum saman og gera allt sem í þeirra valdi er til að endurheimta viðskiptasambönd við Rússland.“

Þá vísar LS til góðra samskipta sem hafi skapast á milli Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, og Vladimir Putin, forseta Rússlands. Þau samskipti væri hægt að nýta „við að finna lausn á þeirri alvarlegu stöðu sem málið er komið í.“

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Landssambands smábátaeigenda.

Í tilkynningunni segir að LS hafi varað við þeirri stöðu sem upp er komin fyrir ári síðan. Jafnvel hafi samtökin gagnrýnt að ekki hafi verið haft samráð við söluaðila sjávarafurða þegar utanríkisráðherra heimsótti Úkraínu í fyrra.

„Yfirlýsingar voru gefnar sem ljóst var að hefðu áhrif á áratuga viðskipti við vinaþjóð Íslendinga - Rússland. LS hvatti þá til að varlega yrði farið í þessum málum því gríðarlegir hagsmunir væru þar undir. Íslendingar sluppu það sinnið við að lenda á lista yfir þjóðir sem Rússar settu viðskiptabann á.“

Þá segir að því miður hafi þessi mál þróast á enn verri veg og að nú sé eitt verðmætasta viðskiptasamband þjóðarinnar í uppnámi. „Verðmæti markaðarins telur í tugum milljarða.“

„Þegar þetta er ritað hefur ríkisstjórnin enn ekki komið saman til að ræða þá grafalvarlegu stöðu sem upp er komin. Það er Landssambandi smábátaeigenda verulegt áhyggjuefni að upplifa bóltöku í þessu mikilvæga málefni.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×