Formúla 1

Lewis Hamilton á ráspól í Ungverjalandi

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lewis Hamilton var lang fljótastur í dag.
Lewis Hamilton var lang fljótastur í dag. Vísir/Getty
Lewis Hamilton á Mercedes tryggði sér ráspól í Ungverjalandi. Nico Rosberg á Mercedes varð annar og Sebastian Vettel á Ferrari varð þriðji.

Mercedes hefur nú náð bíl á ráspól í 21 keppni í röð.

Flestir ökumenn byrjuðu á meðal hörðum dekkjum í fyrstu lotu. McLaren fór beint út á mjúkum dekkjum, aðrir fylgdu svo í kjölfarið. Mjúku dekkin eru tveimur sekúndum fljótari á hverjum hring en meðal hörðu dekkin í Ungverjalandi.

Rosberg varð annar í fyrstu lotu á eftir Hamilton. Rosberg kvartaði stöðugt yfir gripskorti og ójafnvægi í bílnum.

Jenson Button á McLaren, Marcus Ericsson og Felipe Nasr á Sauber og Roberto Merhi og Will Stevens á Manor duttu allir út í fyrstu lotu.

Fernando Alonso komst í aðra lotu en þá bilaði vélin. Rauðum flöggum var veifað og tímatakan stöðvuð. Alonso ýtti bíl sínum inn á þjónustusvæðið við mikinn fögnuð áhorfenda.

Fernando Alonso ýtir biluðum McLaren bílnum. Hann fékk að endingu aðstoð frá brautarvörðum.Vísir/Getty
Í annarri lotu duttu Nico Hulkenberg og Sergio Perez á Force India út, ásamt Carlos Sainz á Toro Rosso, Pastor Maldonado á Lotus og Alonso á McLaren.

Eftir fyrsta tímatökun hringinn í þriðju lotunni var Mercedes með fremstu rásröðina í hendi sér. Þá var spurningin einungis hvor ökumaður Mercedes yrði á ráspól. Rosberg átti ekki svör við hraða Hamilton.

Bein útsending frá keppninni hefst klukkan 11:30 á Stöð 2 Sport á morgun.

Hér fyrir neðan má sjá gagnvirkt brautarkort með öllum úrslitum helgarinnar um leið og þau koma.


Tengdar fréttir

Miklar framfarir framundan hjá McLaren

McLaren liðið telur að það verði orðið samkeppnishæft undir lok tímabilsins. Það er markmið liðsins samkvæmt keppnisstjóra þess, Eric Boullier.

Allison: Raikkonen jafn fljótur og Vettel

Kimi Raikkonen hefur færri stig en liðsfélagi sinn hjá Ferrari, Sebastian Vettel. Ekki vegna þess að Finninn er hægari heldur vegna þess að Vettel gerir nánast aldrei mistök, samkvæmt tæknistjóra liðsins James Allison.

Hamilton fljótastur og Perez valt

Lewis Hamilton var fljótastur á báðum æfingum dagsins í Ungverjalandi. Nico Rosberg á Mercedes varð annar á fyrri æfingunni en Daniil Kvyat á Red Bull varð annar á seinni æfingunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×