Formúla 1

Miklar framfarir framundan hjá McLaren

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Eric Boullier ber höfuðið hátt þrátt fyrir brösugt gengi liðsins undanfarið.
Eric Boullier ber höfuðið hátt þrátt fyrir brösugt gengi liðsins undanfarið. Vísir/Getty
McLaren liðið telur að það verði orðið samkeppnishæft undir lok tímabilsins. Það er markmið liðsins samkvæmt keppnisstjóra þess, Eric Boullier.

McLaren hefur einungis náð í fimm stig í fyrstu níu keppnum tímabilsins. Jenson Button varð áttundi í Mónakó og Fernando Alonso varð tíundi á Silverstone.

Honda er um að kenna samkvæmt McLaren, en báðir aðilar eru ákveðnir í að vinna saman að því að bæta afl og áreiðanleika vélarinnar. Miklar framfarir eru framundan að sögn Boullier.

„Við stöndum okkur ekki nógu vel í augnablikinu - en við vitum að bíllinn er góður,“ sagði Boullier.

„Gefið okkur tíma. Þegar við höfum greitt úr stærstu áreiðanleikavandamálunum sem við stöndum frammi fyrir munum við taka stórt skref fram á við. Við gætum leyst eitt vandamál og fundið hálfa sekúndu og svo leyst annað og fundið aðra hálfa sekúndu,“ bætti Boullier við.

Keppnisstjórinn fullyrðir að liðið geti verið framarlega við lok tímabilsins. Þetta veltur allt á Honda og ef það gengur vel hjá Honda telur Boullier að verðlaunasæti verði möguleiki.

„Markmiðið er ennþá að vera samkeppnishæft lið undir lok tímabilsins. Ef við getum afhjúpað getuna verðum við í baráttunni - með smá heppni - um verðlaunasæti. Ef við náum vélarrafalnum í gang á beinu köflunum getum við sparað mikinn tíma. Við getum það ekki í dag,“ sagði Boullier að lokum.


Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Brjálæði í Bretlandi

Lewis Hamilton á Mercedes kom að lokum fyrstur í mark. Atburðarásin sem leiddi til þess var ótrúleg, þrátt fyrir að heimamaðurinn hafi verið á ráspól.

Gervi þjónustuhlé eru refsiverð

FIA, Alþjóða akstursíþróttasambandið hefur varað Formúlu 1 lið við því að refsingum verði beitt ætli lið að þykjast taka þjónustuhlé.

Vandi McLaren ekki allur hjá Honda

Þróunar- og varaökumaður McLaren, Stoffel Vandoorne segir að til að komast aftur á toppinn þurfi bætingar á öllum sviðum. Skortur á vélarafli sé ekki eini vandinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×