Lífið

Jennifer Lawrence „missti það“ þegar hún hitti Bill Murray á Comic Con

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Lawrence og Murray í góðum gír á Comic Con í San Diego.
Lawrence og Murray í góðum gír á Comic Con í San Diego. vísir/getty
Leikkonan geðþekka, Jennifer Lawrence, réð sér ekki fyrir kæti þegar hún hitti leikarann Bill Murray á Comic Con-ráðstefnunni í gær.

Lawrence sagði frá því á kynningarfundi fyrir nýjustu myndina um Hungurleikana að hún hefði þurft að manna sig upp í að fara og tala við Murray en hún er mikill aðdáandi leikarans. Hún sagðist í fyrstu hafa starað vandræðalega á hann því hún þorði ekki að fara að tala við hann.

„Ég hafði eiginlega talað við hann í gegnum Woody Harrelson. Ég sendi Woody tölvupósta, oftast þegar ég var full, og sagði honum hvað ég myndi vilja segja við Bill Murray. Woody kom þessum skilaboðum áleiðis svo bara það að Bill Murray vissi að ég er til var skref eitt,“ sagði Lawrence á Comic Con í gær og bætti við að Murray hefði minnst á það við hann að vinna saman í framtíðinni.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×