Innlent

Óttast að yfirbragð landsins breytist með gjaldtökunni

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir skrifar
Ferðamenn munu þurfa að greiða fyrir bílastæði á Þingvöllum á komandi misserum.
Ferðamenn munu þurfa að greiða fyrir bílastæði á Þingvöllum á komandi misserum. Vísir/vilhelm
Ögmundi Jónassyni þingmanni VG lýst illa á fyrirhuguð þjónustugjöld í þjóðgarðinum á Þingvöllum og segir að slík gjöld geti breytt ásýnd Íslands sem ferðamannalands.

Þingvallanefnd ætlar taka upp bílastæðagjald í Þjóðgarðinum og er vonast til þess að gjaldið muni skila fjörutíu til fimmtíu milljónum króna á ári. Þá greiða gestir fyrir afnot af salerni og köfun í Silfru. Þjóðgarðsvörðurinn á Þingvöllum segir ákvörðun um þjónustugjöld á Þingvöllum gefa ákveðið fordæmi fyrir því að rukkað verði gjald fyrir þjónustu á ferðamannasvæðum, ekki bara á opinberum friðlýstum svæðum heldur líka stöðum í eigu einkaaðila.

„Þetta slær mig heldur illa. Hingað streyma ferðamenn í stórum hópum til landsins með opin veski og kort á lofti til að greiða fyrir flugfar og gistingu og mat og varning. Þessir fjármunir koma að sjálfsögðu fyrirtækjunum til góða og ríki og sveitarfélögunum því að þarna myndast myndarlegir skattstofnar. En það sem gerist með þessu er að yfirbragð landsins breytist með því að gera þetta svona að verslunarvöru,” segir Ögmundur Jónasson þingmaður VG.

„Alls staðar er verið að rukka, setja upp stöðumæla og eftirlit og gjaldtöku. En það er ekki bara að yfirbragðið breytist heldur verður okkur gert torveldara að njóta landsins því að ég hef grun um að þarna verði ekki látið staðar numið. Þingvellir, svo koma Gullfoss og Geysir og Jökulsárlón og Dettfoss og svo framvegis. Þannig að viljum við hafa þetta yfirbragð á landinu? Ég held ekki,” segir hann ennfremur.

Mikil uppbygging á sér stað á Þingvöllum til að bæta þjónustuna og það kostar peninga. Stefnt er að því að þjónustugjöldin létti undir kostnaði við uppbyggingu en ekkert umfram það. Um milljón manns fara árlega um þjóðgarðinn og svæðið er viðkvæmt.

„Við vitum það að það var bærileg sátt um það að setja annað hvort á komugjöld til landsins eða gjald á hótelgistingu en þessi notendagjöld þau fara illa í mig," segir Ögmundur Jónasson. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×