Nálægur strandveiðibátur kom mönnunum til bjargar Gissur Sigurðsson skrifar 7. júlí 2015 15:20 Báturinn sök við Rit á utanverðu Ísafjarðardjúpi. Kort/Loftmyndir.is
Einn maður fórst og þrír voru hætt komnir þegar dragnógabáturinn Jón Hákon BA-60, sem gerður er út frá Bíldudal, sökk skyndilega út af Rit, nærri Aðalvík, við norðanvert við Ísafjarðardjúp, snemma í morgun. Báturinn sem er stálbátur var þar í ágætu veðri og voru skipverjar að taka inn veiðarfærin þegar eitthvað gerðist skyndilega og sýnt þótti að báturinn sykki. Allt gerðist þetta svo hratt að skipverjum vannst ekki tími til að fara í flotgalla og lentu í sjónum eins og þeir stóðu. Það var klukkan rúmlega sjö og hvarf báturinn þá af skjá sjálfvirku tilkynningarskyldunnar. Skömmu síðar sendi stjórnstöð Gæslunnar út tilmæli til skipa og báta á svæðinu um að svipast um eftir bátnum.Nálægur strandveiðibátur kom mönnunum til bjargar Það var svo hátt í klukkustund síðar að sjómaður á nálægum strandveiðibáti kom fyrstur á vettvang og komust mennirnir þar um borð og fundu brátt lík félaga síns. Hvergi sást björgunarbátur, sem á að blásast sjálfkrafa út ef hann fer á kaf í sjó og er talið að mennirnir hafi hafist við á kili Jóns Hákons þar til hann sökk. Yfirbyggði hraðfiskibáturinn Sædís var skammt undan og vegna góðs aðbúnar þar um borð og hversu hraðskreið hún er, fóru skipverjarnir blautir og kaldir yfir í hana og komu til Bolungarvíkur um klukkan tíu. Þaðan voru þeir fluttir í sjúkrabíl á sjúkrahúsið á Ísafirði til aðhlynningar en munu allir ná sér. Þar voru þeir enn fyrir stundu, en svo skýrist væntanlega við skýrslutökur í dag hvað olli slysinu. Von er á tilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum vegna málsins.
Tengdar fréttir Einn fórst þegar bátur sökk á Ísafjarðardjúpi Þremur mönnum var bjargað en einn fórst þegar fiskibátur sökk út af Rit, við utanvert Ísafjarðardjúp snemma í morgun. 7. júlí 2015 12:05 Mest lesið Lögregla klippti á plöturnar Innlent Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn Innlent „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Innlent Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Innlent Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Erlent „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Innlent Bílvelta austan við Hvalnes Innlent „One love“ til allra í kommentakerfinu Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Fleiri fréttir Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Hnífstunguárás sem var framin í nótt á borði rannsóknardeildar Sá sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Sjá meira
Einn fórst þegar bátur sökk á Ísafjarðardjúpi Þremur mönnum var bjargað en einn fórst þegar fiskibátur sökk út af Rit, við utanvert Ísafjarðardjúp snemma í morgun. 7. júlí 2015 12:05