Þakklátastur fyrir að hafa lent í fangelsi Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 25. júní 2015 12:10 Kyra Maya Phillips vill læra af glæpamönnum.
Duane Jackson var handtekinn í júní árið 1999 fyrir að hafa gert tilraun til þess að flytja inn 6500 töflur af alsælu. Hann þakkar fyrir það að hafa lent í fangelsi af ástæðum sem Kyra Maya Phillips, rithöfundur og frumkvöðull, greindi frá á TEDxReykjavík viðburði í júní. Söguna má sjá í heild sinni í fyrirlestri Phillips hér að neðan. Fréttin hér að neðan greinir aðeins frá inntakinu í fyrirlestri Phillips þar sem erfitt er að fjalla um hann ítarlega án þess að skemma fyrir áhorfendum. Phillips skrifaði bókina The Misfit Economy eða Hagkerfi utangarðsfólksins en bókin fjallar um það hvernig hægt er að læra af utangarðsfólki og á þar við orðið í sinni víðustu merkingu; af glæpamönnum, tölvuþrjótum, svikahröppum, sjóræningjum, fyrrverandi föngum og svo mætti áfram telja. Rithöfundurinn fer í saumana á því hvað það merkir að fylgjast með. „Ekki bara að fylgjast með fréttum af athygli eða hlusta á vin þinn af athygli,“ segir hún heldur á hún við á mun dýpri hátt. „Stíga tilbaka og virkilega skoða eigin gjörðir. Venjur okkar eru svo vel forritaðar í móðurtölvuna okkar að við efumst sjaldan um þær.“Glæpamenn efast og spyrja spurninga Hún nefnir hversu auðvelt það er að fara í gegnum lífið í vanafestu og velta því sjaldan fyrir sér hvað aðrir eru að hugsa og hvernig þeir sjá og upplifa hlutina. Glæpamenn, af öllum stærðum og gerðum, virðast eftir viðtöl, sem Phillips tók við gerð bókarinnar, sífellt spyrja sig spurninga. Þeir storka kerfinu sem samfélagið viðurkennir, stundum hugsunarlaust, og spyrja sig spurninga um eigin hegðun. Saga Duane Jackson er áhugaverð fyrir margar sakir en kannski helst fyrir umbreytinguna sem varð á lífi hans eftir að hann ákvað að stíga tilbaka. Horfa á eigin gjörðir og þann stað sem hann var kominn á í lífinu. Hann spurði sig spurningarinnar: „Staðurinn sem ég er á lífinu í dag – er ég kannski ástæðan fyrir því að ég er staddur hér?“ Þessa spurningu ættu allir að spyrja sig að mati Phillips, það þarf ekki að lenda í fangelsi eða vera í örvæntingarfullum og vonlausum aðstæðum. Fyrirlestur Phillips er í heild sinni hér að neðan eins og áður var nefnt.
Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Fleiri fréttir Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Sjá meira