Myglusveppurinn sendi konu á leið í þríþraut í rúmið Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 3. júní 2015 17:00 Guðbjörg fór í Reykjavíkurmaraþon en stefndi á þríþraut. Vísir/Guðbjörg „
Sæl öllsömul, ég heiti Guðbjörg og ég er mygluð.” Þannig kynnti Guðbjörg Matthíasdóttir sig á kynningarfundi GRÓ, nýstofnaðra samtaka um tengsl heilsu við myglu og raka. Fundurinn var haldinn í gær í hringsal Barnaspítala Hringsins rétt eins og Vísir hefur greint frá. Guðbjörg er þolandi myglusvepps og vakti mikla lukku þeirra tæplega hundrað gesta sem sóttu fundinn með upplýsandi og gamansömu erindi sínu þó alvarlegar afleiðingar fylgi því að búa við myglusvepp en hún bjó við heilsuspillandi aðstæður í um sjö ár. Hún telur eigin fordóma aðalorsök þess hve langan tíma það tók hana að viðurkenna möguleika á myglusvepp.Sjá einnig:Tugir á kynningarfundi um myglusvepp: „Ómetanlegt að finna stuðning"Saga Guðbjargar fer hér á eftir og er áhugaverð fyrir ýmsar sakir, ekki síst vegna þess hve langan tíma það getur tekið að uppgötva og svo viðurkenna myglusveppinn og hvernig hann getur sent manneskju í rúmið sem er líkamlega klár til að takast á við þríþraut.Hæg eitrun sem ágerðist„Ef einhver hefur verið í afneitun um myglumál þá er það ég. Ég var meira að segja lögfræðingur húseigendafélagsins og þurfti að kljást við málefni fólks sem bjó við myglusvepp. Og hafði mikla samkennd með þessu fólki,” sagði Guðbjörg.Ýmsar áhugaverðar upplýsingar komu fram á fundinum, fjölmiðlar hafa fjallað myglusvepp á síðastliðnum árum.Vísir/Íris Guðjónsdóttir„Ég varð fyrir eitrun, hægri eitrun sem síðan ágerðist.” Eins og fyrr segir bjó Guðbjörg við myglusvepp í sjö ár. „Það endaði með því að ég gekk út með náttfötin mín og tannbursta í poka.” Guðbjörg ákvað um fertugt að finna sér ástríðu. Hún var komin með leið á sjálfri sér, var óánægð og með bakmeiðsli. Hún setti sér markmið sem var í upphafi að lagast á bakmeiðslum og leiðanum. „Ég fór á skriðsundnámskeið og svo leiddi eitt af öðru. Mér fer að ganga betur og betur. Ég fer upp úr sundlauginni og fer að hjóla. Af hjólinu fer ég í strigaskó og byrja að hlaupa. Á endanum kynntist ég íþrótt sem heitir þríþraut.”Uppgjöf þrátt fyrir ástríðuna „En svo eftir því sem ég fer að leggja meira og meira í mína heilsu og mína drauma þá fer ég að taka eftir því að ég er samt alltaf að veikjast. Það er ekkert samærmi á milli þess hvað ég er að leggja á mig og heilsu minnar. Ég er alltaf að veikjast og veikjast og veikindin ágerast og ágerast. Ég fæ það sem kallast áreynsluastmi, verð lungnaveik, fæ lungnasýkingar og fleira. Þetta endar þannig að ég gefst upp.”Einkenni sem fylgja myglusveppi eru fjölmörg en koma ekki fram hjá öllum og í mismiklum mæli.Vísir/Skjáskot af vefsíðu Hús og heilsuGuðbjörg segist stanslaust hafa staðið í því að leggjast í rúmið og þurfa svo að rífa sig upp og koma sér aftur af stað. Engir læknar gátu aðstoðað Guðbjörgu og hún skildi ekkert í veikindum sínum. „Það gerist ekkert og lagast ekkert. Það endar með að ég hætti öllu. Ég gerist ég svo örvæntingarfull að ég skrifa inn á bland,” segir Guðbjörg og hlær.Bréf berst frá bjargvættinum að austanÁ síðunni lýsir hún einkennum sínum og líðan og fær í kjölfarið tölvupóst. Pósturinn er frá konu sem er búsett „fyrir austan” og telur einkenni Guðbjargar eiga mikið skylt við sína upplifun af því að búa við myglusvepp. „Hún er mjög skelegg og fer yfir öll mín einkenni.” Þrátt fyrir þetta opnast augu Guðbjargar ekki á þessu stigi.Guðbjörg var komin á hjólið og ætlaði að taka þátt í þríþraut en sveppurinn greip inn í.Vísir/GuðbjörgGuðbjörg gefst þó ekki endanlega upp og fer aftur af stað í líkamsræktina nokkru síðar. Hún fer hægt af stað, velur eina líkamsrækt og er alveg ótrúlega ánægð með sig. „Ég er „bara” veik fjórum til fimm sinnum á ári,” gantast Guðbjörg en það ekki er eðlilegt að búa við svo tíð veikindi. „Ég veikist og veikist áfram þangað til að ég get eiginlega ekki hreyft mig” „Ég er svo til læknis og segi við hana að það sé ekkert að mér og að þess vegna sé ég komin. Ég er ekki tilbúin til að kaupa það að ég sé bara óheppin. Að ég sé alltaf veik en hugsi samt vel um heilsuna og fái engin svör við af hverju það er. Hún var mjög hjálpleg.” Guðbjörg fór í alls kyns rannsóknir, brjósta- og skjaldkirtislkrabbamein var útilokað til dæmis, en þrátt fyrir þær fannst engin lausn.Guðbjörgu tókst að snerta á viðfangsefninu með húmor og gleði og vakti því mikla lukku viðstaddra.Vísir/ÍrisUppgefin og vonlaus fer Guðbjörg í tölvuna og rekst á gamlan tölvupóst, póstinn frá konunni að austan. Hún fer að taka til heima hjá sér með hugann við bréfið, opnar fataskápinn og tekur eftir lykt sem hún fattar að er ekki endilega eðlileg í heilbrigðu húsi. „Það kemur í ljós að fataskápurinn minn er allur myglaður eftir gamalt vatnstjón. Þegar ég fæ Hús og heilsu á staðinn kemur svo í ljós að það er mygla um allt húsið,” sagði Guðbjörg. Myglusveppur er þrautseig lífvera sem getur dreift úr sér á ótrúlegustu staði ef honum tekst að skjóta föstum rótum. Staði þar sem rakastig er ekki yfir hættumörkum. „Ég veikist og veikist áfram þangað til að ég get eiginlega ekki hreyft mig.” Þá grípur vinkona Guðbjargar inn í og skipar henni að flytja til sín, sú hafði sjálf reynslu af myglusvepp.Upplýsti lækninn sjálf um orsök veikindannaGuðbjörg skildi allt eftir, mestallar sínar eigur og híbýli sín en mælt er með því að slíkt sé gert þegar upp kemst um alvarlegan myglusvepp. „Það var síðan ég sem sagði lækninum hvað var að mér. Það voru fyrst og fremst Hús og heilsa sem fundu út úr þessu og svo konan fyrir austan.” Guðbjörg er nú á batavegi þrátt fyrir að batinn gangi hægt. Hún hefur verið í heilbrigðu húsnæði í sex mánuði en tók síðast bakslag fyrir þremur vikum. „Ástæðan fyrir því að þetta tekur svona langan tíma er maður sjálfur, fordómarnir liggja hjá manni sjálfum. Ég var alveg á því að það væri mun auðveldara að greinast með alvarlegan sjúkdóm, það væri auðveldara að ræða það út á við.” Hlaupaskórnir hafa verið dregnir fram og Guðbjörg er aðeins að þreifa á þeim nú þegar hún býr ekki lengur við aðstæður sem eru skaðlegar heilsu hennar. „Það er allt mjög bjart framundan.”
Tengdar fréttir Bindur vonir við starfshóp um myglusvepp Elín Hirst fá úrræði séu til staðar fyrir þá sem ekki hafa efni á að láta hreinsa burt myglusvepp. 13. nóvember 2014 17:03 Miklar framkvæmdir í fjármálaráðuneytinu vegna myglusvepps Endurbótum utanhúss nýlokið 5. september 2014 14:18 Tugir á kynningarfundi um myglusvepp: „Ómetanlegt að finna stuðning" „En íbúar geta haft mikil áhrif, lifnaðarhættir íbúa skipta máli,” útskýrði Sylgja Dögg í ítarlegu erindi um myglusvepp, áhrif hans, veikindi af hans völdum og rétt viðbrögð. 2. júní 2015 23:42 Spítalinn og plágurnar Læknar komnir í verkfall. Ekki er það gott. Verra gæti það verið, ef engir væru læknarnir, sem gætu farið í verkfall. Í þá átt hefur lengi stefnt. Fyrri ríkisstjórn lagði línurnar og sú nýja stefnir hraðbyri sömu leið. 15. nóvember 2014 07:00 Mistök skýra myglu Starfshópur ráðherra er harðorður í skýrslu. 18. apríl 2015 12:00 Mest lesið Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Kourani farinn úr landi Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Innlent Fleiri fréttir Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Sjá meira
Bindur vonir við starfshóp um myglusvepp Elín Hirst fá úrræði séu til staðar fyrir þá sem ekki hafa efni á að láta hreinsa burt myglusvepp. 13. nóvember 2014 17:03
Miklar framkvæmdir í fjármálaráðuneytinu vegna myglusvepps Endurbótum utanhúss nýlokið 5. september 2014 14:18
Tugir á kynningarfundi um myglusvepp: „Ómetanlegt að finna stuðning" „En íbúar geta haft mikil áhrif, lifnaðarhættir íbúa skipta máli,” útskýrði Sylgja Dögg í ítarlegu erindi um myglusvepp, áhrif hans, veikindi af hans völdum og rétt viðbrögð. 2. júní 2015 23:42
Spítalinn og plágurnar Læknar komnir í verkfall. Ekki er það gott. Verra gæti það verið, ef engir væru læknarnir, sem gætu farið í verkfall. Í þá átt hefur lengi stefnt. Fyrri ríkisstjórn lagði línurnar og sú nýja stefnir hraðbyri sömu leið. 15. nóvember 2014 07:00