Margrét Rósa: Hlakka mjög til að fá Söru Rún til mín út Tómas Þór Þórðarson skrifar 5. júní 2015 09:30 Sara Rún Hinriksdóttir skoraði níu stig í gærkvöldi og var frákastahæst. vísir/stefán
Margrét Rósa Hálfdánardóttir átti aftur stórleik fyrir íslenska kvennalandsliðið í körfubolta á Smáþjóðaleikunum í gærkvöldi þegar hún skoraði 14 stig á 15 mínútum í öruggum sigri á Mónakó. Margrét Rósa kom einnig frábærlega inn í fyrsta leikinn gegn Möltu og skoraði þá tíu stig á síðustu tólf mínútum leiksins þegar mest á reyndi. Þessi 21 árs gamla Haukastelpa spilaði í bandaríska háskólaboltanum í vetur með Canisius-háskólanum í New York og hefur tekið miklum framförum. „Þetta var svolítið öðruvísi. Það er svakalega mikill metnaður í þessu úti. Allar stelpurnar eru rosalega góðar og allar vilja fá mínútur,“ sagði Margrét Rósa um Bandaríkjadvölina við Vísi eftir leikinn í gær. „Æfingarnar eru rosalega strangar. Manni er svolítið pakkað inn í bómul en þetta er rosalega mikil vinna og virkilega skemmtilegt,“ sagði hún. Margrét Rósa fær íslenskan samherja á næstu leiktíð því einn besti leikmaður Dominos-deildarinnar undanfarin ár, hin 18 ára gamla Sara Rún Hinriksdóttir úr Keflavík, er komin með skólastyrk hjá Canisius-háskólanum. Sara Rún hefur einnig spilað stórvel með íslenska liðinu á Smáþjóðaleikunum. Hún skoraði sjö stig gegn Möltu í fyrsta leiknum og níu stig og tók sex fráköst gegn Mónakó í gærkvöldi. „Mér finnst mjög spennandi að fá Söru ti liðsins. Ég held að við eigum eftir að spila vel saman og ég hlakka mjög til að fá hana,“ sagði Margrét Rósa Hálfdánardóttir.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Flugóður forseti FIFA Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Fótbolti Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Fótbolti Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Íslenski boltinn Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Heimsmeistarar fá hring Fótbolti Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Fótbolti Fleiri fréttir LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Sjá meira