Martin O'Malley sækist eftir útnefningu demókrata Stefán Ó. Jónsson skrifar 31. maí 2015 21:13 Martin O'Malley ásamt spúsu sinni, Katie í Baltimore í gær. Vísir/APA
Fyrrum ríkisstjóri Maryland-ríkis í Bandaríkjunum, Martin O‘Malley, hefur tilkynnt um þá ákvörðun sína að sækjast eftir útnefningu demókrataflokksins til forsetaembættisins. Hann er þriðji frambjóðandinn sem ákveðið hefur að gefa kost á sér en áður hafa Hillary Clinton, fyrrum innanríkisráðherra Bandaríkjanna, og öldungardeildarþingmaðurinn Bernie Sanders tilkynnt um framboð sín. O´Malley er fimmtíu og tveggja ára gamall og var borgarstjóri Baltimore í tvö kjörtímabil áður en hann varð ríkisstjóri árið 2007. Í framboðsræðu sinni í gær sagði hann sig vera talsmann nýrra tíma í bandarískjum stjórnmálum og reifaði ýmis hugðarefni sín; til að mynda rétt samkynhneigðra til giftinga, málefni innflytjenda og hækkun lágmarkslauna. Þá gagnrýndi hann einnig bónusgreiðslur innan bandaríska fjármálakerfisins og bölvaði hinum ýmsu samfélagsmeinum. „Við getum ekki endurbyggt ameríska drauminn með því að þjónkast við þá ríku og áhrifamiklu,“ sagði O‘Malley í ræðu sinni. O‘Malley studdi Hillary Clinton þegar hún sóttist eftir útnefningu demókrataflokksins árið 2008 en hefur gagnrýnt hana harðlega að undanförnu fyrir störf hennar sem innanríkisráðherra Bandaríkjanna. „Forsetaembættið er ekki einhver kóróna sem á að ganga á milli tveggja fjölskyldna,“ sagði O‘Malley í sjónvarpsviðtali á dögunum og vísaði þar til Bush og Clinton-fjölskyldnanna.
Forsetakosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Sjá meira