Fanneyju vel fagnað eftir einstakt afrek Þorbjörn Þórðarson skrifar 25. maí 2015 21:56
Fanney Hauksdóttur, sem setti heimsmet og varði heimsmeistaratitil í bekkpressu á dögunum, var vel fagnað í hátíðarsal Gróttu í dag. Menntamálaráðherra sagði afrek hennar einstakt en hún lyfti vel rúmlega tvöfaldri líkamsþyngd sinni þegar hún sló metið. Fanney, sem æfir kraftlyftingar hjá Gróttu, gerði sér lítið fyrir og varði heimsmeistaratitil sinn í bekkpressu unglinga og sló heimsmet í sínum flokki þegar hún lyfti 145,5 kílóum. Það er vel rúmlega tvöföld líkamsþyngd hennar en Fanney er 61 kíló. „Það er ekki hægt að ætlast til þess að við Íslendingar eignumst heimsmeistara. Það er eiginlega fráleitt að ekki stærri þjóð en okkar geti státað af slíku. En hérna er tvöfaldur heimsmeistari sem á heimsmet og það er auðvitað alveg einstakt íþróttaafrek,“ sagði Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra þegar Fanney var heiðruð í dag. Fanney hefur bakgrunn í fimleikum og keppti í þeirri íþróttagrein áður en hún byrjaði í kraftlyftingum fyrir nokkrum árum. En hverju þakkar hún þennan góða árangur? „Kraftlyftingadeildinni hjá Gróttu, sérstaklega Ingimundi (Björgvinssyni) þjálfara mínum. Fjölskyldunni heima og Seltjarnarnesbæ. Það voru margir sem komu að þessu,“ segir Fanney sem æfir fjórum sinnum í viku að minnsta kosti. Fanney ætlar aftur að keppa á heimsmeistaramótinu á næsta ári. „Ég var að klára unglingaflokkinn þetta árið. Næst tekur opni flokkurinn við og þá setur maður sér ný markmið og heldur áfram.“
Mest lesið Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira