Innlent

Brestir skoða spámiðla: „Þetta eru alltaf svik“

Bjarki Ármannsson og Þorbjörn Þórðarson skrifa
Í nýjasta þætti Bresta var farið ofan í saumana á starfi spámiðla. Fjöldi Íslendinga sækir þjónustu spámiðla og mikið er að gera hjá þeim vinsælustu. Engum hefur hins vegar tekist að sanna miðilshæfileika sína þrátt fyrir að milljón dollara peningaverðlaun hafi verið í boði í tæpa tvo áratugi.

James Randi stofnunin í Bandaríkjunum hefur í tæpa tvo áratugi boðið þeim sem sannað getur yfirnáttúrlega hæfileika sína milljón dollara peningaverðlaun. Þrátt fyrir að meira en þúsund manns hafi reynt hefur engum tekist að sanna miðilshæfileika sína.

Eru spámiðlar þá loddarar sem hafa fé af auðtrúa fólki eða búa þeir yfir raunverulegri náðargáfu? Þorbjörn Þórðarson þáttastjórnandi heimsótti í þættinum meðal annars Þórhall Guðmundsson, einn þekktasta spámiðil landsins, og lét reyna á miðilshæfileika hans.

Þórhallur Guðmundsson.Vísir/Vilhelm
Alheimsorkan talar á íslensku

Þórhallur stýrði á sínum tíma þættinum Lífsaugað á Stöð 2 og Bylgjunni. Hann segist vera undir sérstökum stjórnendum, sem hafi fylgt honum frá því að hann var ungur maður.

„Það er munkur sem er hjá mér og svo er nunna þarna,“ segir Þórhallur. „Ég fékk mynd af munknum í gegnum annan miðil í Bretlandi. Svo eru aðilar sem hafa komið og þróast í kringum mig sem eru að hjálpa mér. Þeirra taktar koma stundum í gegn.“

Hann segir þetta fólk ekki hafa verið íslenskt. Þó notist það ekki við erlend mál til að koma upplýsingum á framfæri við sig.

„Nei, það er náttúrulega tenging við einstaklinginn,“ segir Þórhallur. „Þá er tengingin við einstaklinginn, mig, í orkunni. Þá er þessi alheimsorka, ef ég má orða það svo, það er talað við mig á íslensku.“

Alheimsorkan talar við þig á íslensku?

„Já.“

Opnar já/nei spurningar

Þórhallur fékk úr Þorbjörns og spurði hann svo spurninga sem margar hverjar voru opnar og um einfalda hluti. Opnar já/nei spurningar spámiðla hafa verið kallaðar „cold reading.” Þær eru sagðar eiga að fá þann sem sækir fundinn til að upplifa það að hann hafi fengið upplýsingar um sig sem fáir vita, þegar hann var kannski á sama tíma að veita miðlinum þessar upplýsingar.

Samtökin Vantrú hafa staðið vaktina gegn spámiðlum og birt pistla undir merkingunni „Kjaftæðisvaktin” á netinu. Sindri Guðjónsson, formaður Vantrúar, var í þættinum fenginn til að rýna í fund Þorbjörns og Þórhalls. Sindri hefur meðal annars kynnt sér tækni „cold  reading.“

„Stundum eru svikin kannski ekki með ráðum hug, stundum eru þau það,“ segir Sindri um aðferðir spámiðlanna. „En þetta eru alltaf svik.“

Meðal þess sem Þórhallur spurði Þorbjörn var hvort hann hefði gaman af tónlist. Þorbjörn svaraði einfaldlega játandi en Sindri segir að „góður kúnni“ spámiðla hefði veitt honum meiri upplýsingar um leið.

„Hann hefði sagt honum: Já, ég er voðalega mikið inni í ákveðinni tegund af tónlist,“ segir Sindri. „Kannski hefði hann sagt kántrímúsík og miðillinn þá getað sagt að það hafi einmitt verið kántrímúsíkin sem hann kveikti á. Hann hefði getað fengið meira út úr kúnnanum.“

„Það er eins og hann viti ekki hvort hann sé dauður eða ekki“

Eftir nokkur feilskot kom að því að Þórhallur hitti í mark á fundi sínum með Þorbirni þegar hann spurði hvort föðurafi Þorbjörns væri nokkuð látinn. Það reyndist satt hjá honum og sagðist Þórhallur þá þurfa að setja sig í samband við hann, því þar hafi verið „sterkur einstaklingur“ á ferð. Sagði Þórhallur þennan látna afa jafnframt fylgjast með Þorbirni og að honum þætti mikið til hans koma.

„Það er náttúrulega nokkuð tölfræðilega líklegt að hann sé dáinn,“ segir Sindri um þessa spurningu Þórhalls. „En hann spyr: Er hann dáinn? Það er eins og hann viti það ekki, afinn sem er búinn að hafa samband við þig, hvort hann sé dauður eða ekki fyrr en þú staðfestir það.“

Sindri segir að ef föðurafi Þorbjörns hefði reynst á lífi, hefði verið hægt að halda áfram að spyrja beint í kjölfarið, til dæmis hvort afinn væri veikur eða hvort það væri móðurafinn sem væri látinn, þar til hann hitti á rétt. 


Tengdar fréttir

Blikar aflýstu miðilsfundi með Þórhalli

Til stóð að Þórhallur miðill Guðmundsson héldi skyggnilýsingarfund í fjáröflunarskyni fyrir Blikadrengi í grunnskóla í bænum. En því hefur nú aflýst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×