Færð á vegum: Búið að opna Reykjanesbrautina Atli Ísleifsson skrifar 10. mars 2015 18:52 Á Suðurlandi en er þæfingsfærð með skafrenningi frá Þjórsá að Hvolsvelli einnig efst á Landvegi. Óveður er undir Ingólfsfjalli og undir Eyjafjöllum. Vísir/Vilhelm
Búið er að opna Reykjanesbrautina, en enn eru þar hálkublettir og óveður. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að vegirnir um Hellisheiði, Sandskeið, Þrengsli, Kjalarnes og Mosfellsheiði séu allir lokaðir.Uppfært 23.50: Samkvæmt nýjustu upplýsingum frá vegagerðinni er stefnt að því að opna vegi um Sandskeið og Þrengsli um klukkan 00.30. Hellisheiðin verður þó áfram lokuð eitthvað fram eftir nóttu. „Þungfært er á Krísuvíkurvegi. Á Suðurlandi en er þæfingsfærð með skafrenningi frá Þjórsá að Hvolsvelli einnig efst á Landvegi. Óveður er undir Ingólfsfjalli og undir Eyjafjöllum. Á Vesturlandi er snjóþekju, hálku með éljagangi og skafrenningi. Ófært er á Bröttubrekku og á Holtavörðuheiði. Ófært er á Vatnaleið, á Fróðárheiði og Staðarsveit. Lokað í Búlandshöfða. Hálka og óveður er á Mýrum. Ófært er norðan megin í Hvalfirðinum. Á Vestfjörðum er víða hálka og snjóþekja og skafrenningur. Mokstri er hætt i nágrenni Ísafjarðar og ekkert ferðaveður. Þungfært og stórhríð er á Gemlufallsheiði og Flateyrarvegi. Þæfingsfærð og stórhríð er í Súgandafirði einnig er Þæfingsfærð og stórhríð er frá Súðavík að Ögri. Steingrímsfjarðarheiði er lokuð og ófært og stórhríð á Þröskuldum. Þungfært og stórhríð er á Hjallháls. Ófært og stórhríð er á Klettsháls, Hálfdáni, Mikladal og Kleifaheiði. Það er hálka, snjóþekja eða hálkublettir og skafrenningur á Norðurlandi og versnandi veður. Hálka og óveður er á Mývatnsöræfum. Á Austurlandi eru hálkublettir. Hálkublettir og skafrenningur er á Oddskarði. Hálka eða snjóþekja er með suðausturströndinni og sumstaðar éljar. Snjóþekja og stórhríð er í Öræfum.“Á vef Vegagerðarinnar segir að skil óveðurslægðarinnar fari hjá suðvestanlands milli klukkan 17 og 18. „Um leið hlýnar um stund og skyggni batnar á láglendi, en áfram verður skafrenningur á fjallvegum. Hríðarkóf og stormur víðast hvar norðan- og norðaustanlands þar til seint í kvöld. Sjálf lægðarmiðjan kemur heldur nær landi en áður var spáð. Það hefur í för með sér að vestast m.a. á Suðurnesjum verður aftur foráttuhvasst af S fljótlega í kjölfar skilanna með krapaéljum og hálku. Veðurhæð í strengnum er áætluð um 25 m/s og mjög snarpar hviður verða á norðanverðu Snæfellsnesi til um kl. 22 í kvöld Um svipað leyti nær strengurinn til Vestfjarða og þar er reiknað með stórhríðarveðri fram á nótt.“Post by Lögreglustjórinn á Suðurnesjum.
Mest lesið Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Erlent „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Erlent „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Erlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Innlent Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Erlent Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Erlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Fleiri fréttir Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Veðrið haggist ekki að neinu ráði Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Bílvelta í Skötufirði Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Sjá meira