Fjögur ár frá flóðbylgjunni – Myndbönd Samúel Karl Ólason skrifar 11. mars 2015 14:01 Japanir kveiktu á luktum til að minnast þeirra sem fórust. Vísir/EPA
Japanir minnast þess í dag að fjögur ár eru frá því að gífurlega stór og mikil flóðbylgja skall á austurströnd landsins. Þúsundir létu lífið og flóðbylgjan olli kjarnorkuslysi í Fukushima, sem mun draga dilk á eftir sér í áratugi. Samkvæmt yfirvöldum í Japan hefur verið staðfest að 15.891 létu lífið og 2.584 er enn saknað. Mínútu þögn var um landið allt klukkan 14:46 að staðartíma, en þá varð 9 stiga jarðskjálfti fyrir utan strendur Japan fyrir fjórum árum. Flóðbylgjan kom í kjölfar hans. Samkvæmt AFP fréttaveitunni, er margir bæir við strendur Japan, enn eins og draugabæir. Þrátt fyrir að stjórnvöld hafi heitið miklum fjármunum til uppbyggingar hefur starfið gengið hægt víða. Enn hafa 230 þúsund Japanir enn ekki geta snúið aftur til heimila sinna og flest þeirra vegna kjarnorkumengunar frá Fukushima. Þar af búa 80 þúsund manns enn í tímabundnum neyðarskýlum. Eftir kjarnorkuslysið var slökkt á öllum kjarnorkuverum landsins. Vegna mikils kostnaðar við annarskonar rafmagnsframleiðslu vilja yfirvöld og þorri atvinnulífsins þó kveikja aftur á kjarnorkuverum. Íbúar Japan eru þó ekki sannfærðir um þörf þess. Margir hafa áhyggjur af mengun frá Fukushima og óttast áhrif hennar á heilsu fólks. Krabbameinssérfræðingur sem kom að rannsóknum á heilsukvillum í kjölfar slyssins í Chernobyl, segir áhyggjur þessar þó ekki á rökum reistar. „Áhrif mengunar á heilsu fólks voru lítil, en áhrif þess að hafa sífellt áhyggjur af afleiðingum mengunarinnar voru mun verri,“ sagði hún um niðurstöður rannsókna frá Chernobyl.
Mest lesið Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Sjá meira