Formúla 1

Hamilton: Ég verð hér aftur

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lewis Hamilton fagnaði 25 stigum á verðlaunapallinum með kampavíns frussi.
Lewis Hamilton fagnaði 25 stigum á verðlaunapallinum með kampavíns frussi. Vísir/Getty
„Það er gott að byrja tímabilið svona og hitta þig hér. Við æfum mikið og það er mikið líkamlegt álag sem fylgir því að keyra í Formúlu 1. Ég verð hér aftur,“ sagði Lewis Hamilton og lokaorðin í takt við Arnold Schwarzenegger sem sá um viðtölin á verðlaunapallinum í dag, þemað var líkamlegt ástand ökumanna.

„Bíllinn er frábær, alveg fáránlega góður. Lewis var góður alla helgina hann ók eins og heimsmeistari. Ég mun veita honum harða keppni allt tímabilið. Maður þarf að halda einbeitingu altt tímabilið og má ekkert misstíga sig,“ sagði Nico Rosberg á verðlaunapallinum.

„Það er mikill heiður að aka fyrir Ferrari. Tímabilið byrjar vel hjá okkur. Við áttum góðan vetur en það er mikil vinna framundan til að ná og taka fram úr Mercedes,“ sagði Sebastian Vettel á verðlaunapallinum.

„Það er gaman að sjá heimavinnuna skila sér. Helgin var hikstalaus hjá báðum ökumönnum,“ sagði Toto Wolff, keppnisstjóri Mercedes liðsins.


Tengdar fréttir

Hver sagði hvað eftir tímatökuna?

McLaren á öftustu rásröð, Mercedes ósnertanlegir og Felipe Massa bestur af restinni. Hvaða ummæli féllu eftir tímatökuna í Ástralíu.

Getur einhver skákað Hamilton?

Tímabilið í Formúlu 1 fer af stað um helgina þegar 20 ökumenn tíu liða ræsa á Albert Park-brautinni í Ástralíu. Risastórar breytingar hafa orðið á stærstu liðunum og býst sérfræðingur Stöðvar 2 Sports við skemmtilegu tímabili. Heimsmeistarinn er áfram lík

Hamilton hóf titilvörnina af krafti

Lewis Hamilton á Mercedes vann fyrstu keppni tímabilsins, liðsfélagi hans Nico Rosberg varð annar. Sebastian Vettel varð þriðji í sinni fyrstu keppni með Ferrari.

Lewis Hamilton á ráspól í Ástralíu

Lewis Hamilton á Mercedes náði ráspól fyrir ástralska kappaksturinn, liðsfélagi hans Nico Rosberg varð annar og Felipe Massa á Williams varð þriðji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×