Lífið

MTV mælir með Secret Solstice

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Secret Solstice
Secret Solstice Vísir
Sjónvarpsstöðin MTV mælti með Íslandi og þá sérstaklega tónlistarhátíðinni Secret Solstice í grein, sem þeir birtu á heimasíðu sinni, um heitustu áfangastaðina fyrir árið 2015.

Bentu þeir sérstaklega á að taka með sér svefngrímu yfir sumarið, þar sem það væri bjart allan sólarhringinn. Það væri því upplagt að skella sér á 72tíma hátíðina sem haldin verður í Laugardalnum 19.-21.júní, einmitt á þeim tíma sem sólin er á lofti alla helgina. 

Fjallað hefur verið um hátíðina í fjölmörgum erlendum miðlum á borð við BBC Travel, The Guardian og Time Magazine. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×