Fyrir neðan kortið má sjá ítarlegri umfjöllun. Við mælum með að lesendur velji að hafa kortið í fullri skjástærð til að skoða það. Hægt er að þysja inn og út af kortinu, fara með músabendilinn yfir línur og smella til að fá ítarupplýsingar.

Tilgangur ferðanna hefur verið æði misjafn en ferðirnar til Abu Dhabi eru flestar vegna starfa forsetans í dómnefnd Zayed-orkuverðlaunanna, þar sem forseti gegnir formennsku. Tvær af ferðum forsetans til London voru vegna Ólympíuleikanna og Ólympíuleika fatlaðra. Þá fór forsetinn líka á landsleik Íslands og Króatíu sem fram fór í Zagreb í undankeppni HM í fótbolta karla árið 2013.
Forsetinn hefur líka verið duglegur við að tala á fundum og taka þátt í verkefnum tengdum Norðurslóðum. Ólafur Ragnar var þá einnig viðstaddur eina stærstu efnahagsráðstefnu heims, Alþjóða efnahagsþingið, World Economic Forum, í Davos í Sviss árið 2013.
Milljónir í dagpeninga
Heildardagpeningagreiðslur vegna þessara ferða nemur 7,9 milljónum króna en þar af hefur forsetinn sjálfur fengið 5,2 milljónir. Í flestum ferðanna hefur hann verið með embættismann með sér í för og nema dagpeningagreiðslur til embættismanna 2,7 milljónum króna. Í þeim ferðum sem forsetinn hefur tekið eiginkonu sína með sér, Dorrit Mousaieff, hefur hún ekki fengið dagpeninga.

Sjö sinnum fengið gistingu
Í svarinu kemur fram að Ólafur Ragnar hefur í sjö skipti á tímabilinu fengið hótelgistingu frá einkaaðilum. Það var vegna norðurslóðaráðstefnunnar Arctic Imperative í Alaska, norðurslóðaráðstefnunnar í Yamal Nenets, alþjóðaþings Milken-stofnunarinnar í Los Angeles, málþings bandaríska sjónvarpsmannsins Charlie Rose í Aspen og Arctic Business Round Table í Ósló. Mótshaldarar heimsmeistaramóts íslenska hestsins í Berlín greiddu einnig fyrir gistingu forsetans og Eimskip borgaði eina gistinótt vegna viðskiptaþings í Maine.
Kostnaðurinn skiptir tugmilljónum
Heildarkostnaður íslenska ríkisins vegna ferðalaga forsetans skiptir milljónum króna á þessu tímabili. Auk 7,9 milljónanna sem fara í dagpeningagreiðslur borgar ríkið ferðakostnað og gistingu, nema í áður tilgreindum tilfellum. Í einhverjum tilfellum bera opinberir aðilar á þeim stað sem forsetinn sækir kostnaðinn eða hluta hans. Ekki kemur fram í hvaða ferðum það hefur verið né hvað um er að ræða háar fjárhæðir sem erlend ríki hafa greitt fyrir Ólaf Ragnar.

Handhafar frá greitt
Þar til viðbótar þarf ríkið að greiða handhöfum forsetavalds laun þegar Ólafur Ragnar fer af landi brott. Þær greiðslur námu 2,4 milljónum frá ágúst 2012 til ársloka sama ár, 9,5 milljónum árið 2013 og 10 milljónum árið 2014. Samtals gera það 21,9 milljónir króna. Handhafarnir eru forseti Alþingis, forsætisráðherra og forseti hæstaréttar.
Samtals er því kostnaðurinn við bæði ferðirnar og laun handahafa forsetavalds 48,4 milljónum króna.