Erlent

Hryðjuverkamenn teknir af lífi í Jórdaníu

Sajida al-Rishawi.
Sajida al-Rishawi.
Yfirvöld í Jórdaníu tóku í nótt tvo dæmda hryðjuverkamenn af lífi eftir að ISIS liðar í Sýrlandi og Írak birtu myndir sem sýna aftöku jórdansks orrustuflugmanns sem þeir tóku í gíslingu í desember.

Á myndunum má sjá að maðurinn var brenndur lifandi í búri. Annar fanganna sem var aflífaður í nótt var Sajida al-Rishawi, íröksk kona sem ISIS menn höfðu krafist að yrði látin laus í skiptum fyrir flugmanninn.

Al-Rishawi hafði verið á dauðadeild en hún átti aðild að sprengjuárás í höfuðborginni Amman árið 2005 þar sem sextíu létu lífið. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×