Siglingar milli Reykjavíkur og Akraness gætu hafist á ný Stefán Árni Pálsson skrifar 23. janúar 2015 14:16 Viljayfirlýsingin var undirrituð á Ægisgarði í gömlu höfninni í morgun en með henni skuldbindur bæjarfélögin m.a. í að fara í ítarlega markaðsrannsókn til að kanna tekjuhlið slíkra siglinga. mynd/aðsend
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri á Akranesi undirrituðu viljayfirlýsingu í morgun um það að bæjarfélögin hefji sameiginlega skoðun á því hvort flóasiglingar á milli Akraneskaupstaðar og Reykjavíkur geti verið góður valkostur í almenningssamgöngum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Viljayfirlýsingin var undirrituð á Ægisgarði í gömlu höfninni í morgun en með henni skuldbindur bæjarfélögin m.a. í að fara í ítarlega markaðsrannsókn til að kanna tekjuhlið slíkra siglinga. Akraborgin var síðasti flóabáturinn sem sigldi á milli bæjarfélaganna við miklar vinsældir. Skipið flutti bíla á milli áfangastaða en hætti að ganga með tilkomu Hvalfjarðarganganna árið 1998. Hugmyndin nú er ekki að hefja flutninga á bílum á ný sjóleiðina heldur yrði bátur í ferðum á milli staðanna sem flytti fólk, eins konar bátastrætó, sem einnig gæti verið í ferðum á milli Viðeyjar og jafnvel Gufuness. Horft yrði til þess að einungis tæki 30 mínútur að sigla á milli Reykjavíkur og Akraness.Áhugaverður kostur „Með svona ferju gæti verið kominn áhugaverður valkostur í almenningssamgöngum sem myndi draga úr umferð. Fólk gæti ferðast hratt á milli, jafnvel með hjólin sín og sinnt sínum erindum. Þá býður þetta upp á alls konar möguleika fyrir ferðamenn. Það þarf að skoða þennan valkost almennilega og það ætlum við að gera,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. Faxaflóahafnir hafa þegar látið vinna frumskýrslu um málið en hana vann Bergþóra Bergsdóttir og var hún kynnt í borgarráði sl. fimmtudag. Í skýrslunni er gert ráð fyrir að slík ferja myndi þjóna tvenns konar tilgangi. Annars vegar að bjóða upp á fastar áætlunarferðir á milli Reykjavíkur og Akraness en hins vegar valkost fyrir erlenda ferðamenn. Í skýrslunni segir m.a. „Hugmyndin sem hér verður fjallað um snýst um að hraðskreiður bátur, sem tekur um 65 manns, verði notaður í siglingar milli Akraness og Gömlu hafnarinnar í Reykjavík. Þjónustan væri viðbót við núverandi samgönguleiðir. Sigling á hraðskreiðum bát tekur styttri tíma en keyrsla landleiðina, eða einungis um 30 mínútur með þeim bát sem notaður er til viðmiðunar. Slíkt gerir farþegum kleift að komast á milli Akraness og miðborgar Reykjavíkur á skemmri tíma en tekur að aka á milli staðanna. Gert er ráð fyrir því að reksturinn verði ekki sjálfstæður heldur sé hluti af starfsemi annars fyrirtækis.“Sakna gömlu Akraborgarinnar Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri Akraneskaupstaðar segir að margir bæjarbúar sakni gömlu Akraborgarinnar. ,,Ég er viss um að margir myndu nýta sér slíka ferju og þetta myndi klárlega nýtast okkur við eflingu ferðaþjónustunnar á Akranesi.“ Strætó býður upp á tólf ferðir á milli Akraness og Reykjavíkur alla virka daga og tekur ferðin að meðaltali 53 mínútur frá Mjódd að bæjarskrifstofum á Akranesi samkvæmt skýrslunni. Meðalferðatími frá Mjódd niður í miðborg er 22 mínútur. Meðalferðatími ferju sem myndi ganga á milli staðanna er hins vegar um hálftími. Ef notaður er einkabíll kostar hver ekinn kílómetri um 80 krónur. Svo segir í skýrslunni: „Ef miðað er við að ferðalagið á milli Akraness og Reykjavíkur sé um 49 km aðra leið má áætla að kostnaðurinn við það sé um 3.916 kr. Hins vegar þarf að bæta við 1.000 kr. til þess að komast í gegnum Hvalfjarðargöngin (ef gert er ráð fyrir stöku fari en ekki afsláttarkjörum). Langflestir sem ferðast á milli eru þó með afsláttarlykil og er gjaldið í Hvalfjarðargöngin þá minnst 283 kr. Ferðalagið tekur um 45 mínútur líkt og hjá leigubílum. Miðað við einn og hálfan farþega að meðaltali í hverjum bíl og meðalgjald hvers bíls í göngin (um 580 kr.) er kostnaður hvers einstaklings við að ferðast á einkabíl á milli um 2.997 kr.
Ferðamennska á Íslandi Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Fleiri fréttir Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Sjá meira