Lífið

Sara Björk, Gylfi Þór og Aron í Atvinnumönnunum okkar

Bjarki Ármannsson skrifar
Sara Björk, Gylfi Þór og Aron eru í fremstu röð íslenskra íþróttamanna.
Sara Björk, Gylfi Þór og Aron eru í fremstu röð íslenskra íþróttamanna. Vísir
Sara Björk Gunnarsdóttir, Gylfi Þór Sigurðsson og Aron Pálmarsson verða meðal þeirra íþróttakappa sem gleðigjafinn Auðunn Blöndal mun sækja heim í væntanlegri þáttaröð um Atvinnumennina okkar. Auðunn lét fylgjendur sína á Twitter vita af þessu í dag.

Alls stendur til að þættirnir verði sex talsins og ríkir enn leynd yfir því hvaða þrír kappar verða heimsóttir til viðbótar. Sara Björk og Gylfi Þór eru bæði atvinnumenn í knattspyrnu, Sara með Rosengård í Svíþjóð og Gylfi með Swansea í ensku deildinni, en Aron leikur handbolta með Kiel í Þýskalandi. Öll eru þau í lykilhlutverkum hjá íslenskum landsliðum í sinni grein.

Fyrri þáttaröðin naut mikilla vinsælda á sínum tíma, en þá voru Ólafur Stefánsson handboltamaður og Eiður Smári Guðjónsen knattspyrnumaður meðal annars sóttir heim. Tökur á þáttunum munu hefjast í lok sumars og standa fram á haust.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×