Handbolti

Aron: Við Einar máttum við því að missa nokkur kíló

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Doha skrifar
Vísir/Eva Björk
Svo virðist sem að kveisa hefur verið að ganga á milli manna á Intercontinental-hótelinu í Doha, þar sem öll keppnisliðin í riðli Íslands á HM í handbolta dvelja.

Sem betur fer hafa leikmenn íslenska liðsins sloppið en þeir Aron Kristjánsson, landsliðsþjálfari, og Einar Þorvarðarson, framkvæmdarstjóri HSÍ, voru hins vegatr slappir í gær.

„Af okkur öllum var best að ég og Einar Þorvarðarson fengum þessa pest. Við megum við því að missa nokkur kíló,“ sagði Aron brosandi við Vísi í dag en leikmenn annarra liða, þeirra á meðal Filip Jicha hjá Tékklandi, hafa verið rúmliggjandi síðustu daga.

„Ég var að vakna nokkuð upp nóttina fyrir leik og var slappur í gær. En ég er töluvert betri í dag. Sem betur náði ég að klárar allar mínur skyldur í gær og klára leikinn. Það var gott.“

Aron segir að það hafi verið góð tilfinning að leggjast á koddann í gær þrátt fyrir að leikurinn hafi byrjað illa gegn Alsír.

„Það var meiri ró yfir spili okkar og við vorum klókari en í fyrsta leiknum. Nú ættum við að verða komnir yfir mestu spennuna og vera búnir að spila okkur inn í mótið.“

Ísland mætir Frakklandi í sínum þriðja leik á HM annað kvöld og ljóst að það verður ærið verkefni fyrir Aron og hans menn. „Frakkar hafa verið með eitt besta lið í heimi í nokkur ár og þetta verður áskorun fyrir okkur.“

„Fyrsta markmiðið okkar verður að bæta okkur leik gegn 6-0 vörn eins og Frakkar hafa verið að spila. Við munum líka spila gegn slíkri vörn þegar við mætum Tékkum. Æfingarnar í dag verða því notaðar til að bæta ákveðna þætti í okkar sóknarleik til að geta spilað gegn slíkum liðum.“

„Við þurfum líka að standa þétt á Frakkana en þeir eru gríðarlega sterkir maður gegn manni og hafa verið grimmir í að fiska menn út af í brottvísun.“

„Það er bara í okkar DNA að fara inn í hvern leik til að vinna þá og er það ekkert öðruvísi farið með þennan leik,“ segir Aron.

Eins og komið hefur í ljós á mótinu þurfa flestallir þættir að vera í lagi hjá íslenska liðinu til að ná árangri. Vörn og markvarsla var til að mynda í lagi gegn Svíum en engu að síður tapaðist sá leikur með átta marka mun.

„Það þarf að vera jafnvægi á milli allra þátta. Ef að sóknarleikurinn er ekki í lagi getum við til dæmis lent í vandræðum með innáskiptingarnar okkar. Þá er besta leiðin til að verjast hraðaupphlaupum að spila góða sókn og nýta færin okkar. Það gekk erfiðlega í byrjun leiksins gegn Alsír en svo kom það hjá okkur.“


Tengdar fréttir

Káta kylfinginn í landsliðið

Ísland er komið af stað á HM í handbolta þrátt fyrir pínlega byrjun gegn Alsír í gær. Strákarnir unnu sín fyrstu stig á mótinu en fyrirliðinn segir deginum ljósara hvað þurfi að gera til að ná árangri í Katar.

Arnór hefur ekki áhyggjur af lærinu

Arnór Þór Gunnarsson fékk þungt högg framan á hægra lærið í leiknum gegn Alsír í gær og var hann nokkra stund að hrista það af sér. Hann hefur þó ekki áhyggjur af því að það muni há honum í keppninni.

Snorri Steinn: Fór aðeins um mig

"Það er engin spurning að mér er létt. Dagurinn eftir Svíaleikinn var erfiður og það er gott að vera kominn á kortið þó svo byrjun þessa leiks hafi ekki alveg verið sú sem maður óskaði sér," sagði Snorri Steinn Guðjónsson, leikstjórnandi íslenska landsliðsins, eftir Alsír-leikinn.

Snorri Steinn með tvöfalt tímamótamark á móti Alsír

Snorri Steinn Guðjónsson skoraði sögulegt mark fyrir íslenska handboltalandsliðið í sigurleiknum á móti Alsír á HM í handbolta í gær. Fyrra mark Snorra í leiknum var nefnilega tvöfalt tímamótamark.

Aron: Hafði aldrei áhyggjur

Aron Pálmarsson var maður leiksins í sigri Íslands á Alsír í kvöld en eftir erfiða fæðingu er Íslands loksins komið á blað á HM í handbolta.

Einkunnir Gaupa: Aron Pálmarsson bestur

Eftir hvern leik íslenska liðsins mun Guðjón Guðmundsson, handboltasérfræðingur Stöðvar 2 Sports, gefa leikmönnum og þjálfaranum einkunnir.

Markvörður Svía fékk í magann

Óvíst er með þátttöku markvarðarins Johans Sjöstrand í leik Svíþjóðar og Tékklands á HM í handbolta í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×