Gagnrýna háa verðskrá ferðaþjónustu fatlaðra í Reykjavík Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 8. janúar 2015 16:48 Átak telur að vegna hárrar gjaldskrár muni sumir félagsmenn ekki geta tekið þátt í störfum félagsins. Vísir/Anton Brink
Átak, félag fólks með þroskahömlun, lýsir undrun sinni á nýrri gjaldskrá á ferðaþjónustu fatlaðs fólks í Reykjavík, í ályktun sem það hefur sent frá sér. Félagið telur að vegna hárrar gjaldskrár muni sumir félagsmenn ekki geta tekið þátt í störfum Átaks og spyrja hvort að verðið sé til þess fallið að auka félagslega þátttöku fatlaðs fólks. Þá gagnrýnir félagið jafnfram bæklinga og upplýsingagjöf til notenda þjónustunnar. Þeir séu hvorki á aðgengilegu formi né auðskildir og þar af leiðandi óaðgengilegir þeim sem nota þjónustuna. Átak óskar eftir því að Strætó bæti úr þessu en ályktun félagsins má sjá í heild sinni hér að neðan:Átak félag fólks með þroskahömlun lýsir undrun sinni á nýrri gjaldskrá ferðaþjónustu fatlaðs fólks í Reykjavík. Gjaldskráin er þannig að sumir félagar Átaks, geta ekki tekið þátt í félagsstörfum vegna hárrar gjaldskrár ferðaþjónustunnar.Félagsmaður sem notar strætó og er með árskort sem hann greiðir 70.900 fyrir á ári á meðan annar sem notfærir sér ferðaþjónustuna greiðir kr. 1.100, fyrir hverja aukaferð hjá ferðaþjónustunni. Fyrir þá sem sitja í stjórn Átaks og sækja reglubundna stjórnarfundi og viðburði sem Átak stendur fyrir gæti það kostað kr. 57.200 kr. á ári. Sá sem notar strætó kemst eins oft og hann vill á hvað sem hann vill.Hvað er sanngjarnt við þetta? Mun þetta auka félagslegaþátttöku fatlaðs fólks?Átak telur að þetta muni leiða til þess að félagsmenn muni frekar neita sér um að sækja viðburði og taka þátt í starfi félagsins vegna fjárhags.Í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks segir í 20. gr.:,,Passa þarf að sjálf-stæði fatlaðs fólks sé tryggt og að það geti farið allra sinna ferða," og ,,Góð ferða-þjónusta og aðstoð starfsfólks fyrir fatlaða á að vera aðgengileg og ódýr."Einnig gagnrýnir Átak bæklinga og upplýsingagjöf til notenda þjónustunnar. Þeir eru ekki á aðgengilegu formi né auðskyldir og því óaðgengilegir þeim sem nota þjónustuna.Óskað er eftir því að Strætó bæti úr þessu og komi upplýsingum á auðskilinn texta og myndræna framsetningu þannig upplýsingar séu aðgengilegar fyrir alla.Við teljum að fatlað fólk eigi rétt á að ferðast eins oft og það vill eins og allir aðrir, það er grundvöllur sjálfstæðis okkar í samfélaginu.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Sjá meira