Vilja gæða fúkyrðaflóruna lífi Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar 18. nóvember 2015 07:00 Fólk er mislagið við að tvinna saman kjarnyrt fúkyrði, auk þess sem smekkur fólks fyrir slíku er misjafn. Fréttablaðið/Stefán „
Það er fallegt að kunna að blóta á okkar ástkæra, ylhýra móðurmáli. Það er bragur yfir slíku blóti,“ segir Hafþór Sævarsson, nýkjörinn formaður Hins íslenska fúkyrðafélags. Félagið var stofnað á degi íslenskrar tungu og markmið þess er að vernda, efla og dýpka flóru íslenskra fúkyrða og treysta hlutverk íslenskrar tungu við tjáningu dólgsháttar og dónaskapar. Hafþór segist uggandi yfir stöðu fúkyrða. „Við viljum viðhalda þeim góðu fúkyrðum sem þjóðin hefur varðveitt. Ásamt því leggjum við til að allir leggi hönd a plóg við nýyrðasmíð. Ávallt er sárt að sjá fallega hugsun í lörfum. Þá þarf að vanda til verka og skiptir góð umgjörð því miklu. Þar af leiðandi var stofnun félagsins lykilatriði.“ Spurður út í ágæt íslensk fúkyrði nefnir Hafþór meðal annars orðin flautakollur og fúlmenni, roluskaft og rolumenni. „Annars er orðið á götunni að ballarserðir og syndaselur séu í hávegum bakkabræðra höfð um þessar mundir.“ En er félagið að hvetja til þess að almenningur brúki ljótan munnsöfnuð í meira mæli? „Lengi skal manninn reyna að þurfa að hlusta á ljót fúkyrði,“ segir Hafþór „Það munum við ekki lengur láta sem vind um eyrun þjóta. Dónaskapinn má þó í það minnsta klæða þannig að hægt er að una við að þurfa að hlusta á slíkan ósið.“
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira