Lífið

Herra Ísland þá, nú Herra Óli Geir í Asíu.

Sir Óli Geir
Sir Óli Geir Vísir/ Anton Brink
Óli Geir, fyrrverandi herra Ísland, starfandi plötusnúður og mikill athafnarmaður, hefur nú lagt land undir fót og dvelur á Filippseyjum ásamt kærustu sinni, Ásdísi Lísu fyrirsætu.

Hefur hann það afar huggulegt og fer mikinn um innfædda á fésbókarsíðu sinni.

Segir hann meðal annars frá því að hann sé kallaður Sir, eða herra, í tíma og ótíma, og líkar það býsna vel.

Má með sanni segja að Óli Geir sé í góðum málum og virðist lukkustjarnan hafa verið með honum frá upphafi ferðar, sem hófst á að enginn annar en Alexander Rybak, norska Eurovision-stórstjarnan, sat á næsta borði við hann á flugvellinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×