Landssöfnun Samhjálpar – Styðjum uppbyggingu í Hlaðgerðarkoti Jón Norðfjörð skrifar 20. nóvember 2015 07:00 Mikilvæg starfsemi Samhjálpar er og hefur verið leið til betra lífs fyrir marga einstaklinga. Þannig starfi og árangri vill Samhjálp skila áfram til samfélagsins. Starfsemi félagsins hefur alla tíð verið öflug til stuðnings þeim sem minna mega sín í þjóðfélaginu. Margir þekkja til félagsins vegna reksturs Kaffistofu Samhjálpar í Borgartúni þar sem um 65 þúsund máltíðir eru gefnar skjólstæðingum félagsins á hverju ári. Annað stórt verkefni Samhjálpar, sem sjaldnar er í umræðunni, er starfsemi meðferðarheimilisins Hlaðgerðarkots í Mosfellsdal. Þar hafa fjölmargir einstaklingar leitað skjóls á undanförnum rúmum 40 árum vegna áfengis- og/eða fíkniefnavanda og fengið meðferð sem hefur skilað mjög mörgum góðum árangri.Vaxandi þörf fyrir Samhjálp Í okkar fámenna þjóðfélagi er þörfin fyrir hjálparstörf og aðstoð við þá sem af ýmsum ástæðum lenda undir í lífinu, ótrúlega mikil. Áfengis- og fíkniefnavandinn vegur þar þungt og hefur valdið mun meiri vanda og skaða í okkar annars góða samfélagi en margir gera sér grein fyrir. Það er staðreynd að áfengis- og fíkniefnanotkun eykst stöðugt með hörmulegum afleiðingum þar sem meðal annars eðlilegt líf fleiri og fleiri fjölskyldna er lagt í rúst. Þörfin fyrir aðstoð við áfengis- og fíkniefnaneytendur, jafnt yngri sem eldri einstaklinga vex stöðugt þrátt fyrir ýmiskonar velmeinandi forvarnarstörf á umliðnum árum, sem því miður hafa ekki skilað nægilega góðum árangri. Ótrúlega lítið fer fyrir nauðsynlegri umræðu og markvissum aðgerðum til að sporna gegn þessum mikla vanda. Nær daglega má þó sjá og lesa í fjölmiðlum fréttir og frásagnir af ýmsum atvikum, afbrotum, heilbrigðisvandamálum o.þ.h. sem tengjast beint áfengis- og fíkniefnamálum. Því miður er sjaldnar rætt um mögulegar leiðir til lausna.Landssöfnun Samhjálpar Nú blásum við til sóknar hjá Samhjálp. Í ljósi framangreindra aðstæðna hefur stefnan verið sett á að efla starfsemina í Hlaðgerðarkoti með endurbótum og stækkun á húsnæðinu. Elsti hluti húsnæðisins er kominn til ára sinna og þarfnast viðhalds og endurnýjunar. Til að bæta úr því vantar félagið fjármagn og stuðning og því hefur verið ákveðið að leita liðsinnis hjá einstaklingum og fyrirtækjum með landssöfnun til uppbyggingar í Hlaðgerðarkoti og verður landssöfnunin í opinni dagskrá á Stöð 2 hinn 21. nóvember nk. Í undirbúningsvinnu fyrir landssöfnunina höfum við fundið fyrir miklum stuðningi og velvild hjá fyrirtækjum og einstaklingum sem fúslega styðja félagið í mikilvægum verkefnum þess og fyrir það vilja stjórn og starfsmenn færa öllum innilegar þakkir. Við hvetjum alla til að gerast bakhjarlar Hlaðgerðarkots með stuðningi við þetta góða og tímabæra verkefni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Sigurjón Þórðarson og sannleikurinn Sigurgeir B. Kristgeirsson Skoðun Barnamorðingjar eru velkomnir til Íslands Björn B. Björnsson Skoðun Stjórnsýsla Íslands er ekki „allt of lítil“, hún er „lítil og skilvirk“ Halldór Jörgen Olesen Skoðun Dómar sem eru ekkert annað en „one way ticket“ á Litla-Hrauni Davíð Bergmann Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða áfengisgjaldið? Einar Bárðarson Skoðun Hver vill borða brauðið? Jón Óskar Hinriksson Skoðun Obb obb obb Bogi minn 698.500 kr. fyrir að breyta einum litlum flugmiða Kristján Logason Skoðun Hvernig lesum við skoðanagreinar? Hilmar Kristinsson Skoðun Þegar dýravelferð víkur fyrir hagnaði Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Af hverju hunsa Samfylkingin og Vinstrið umboðsmann barna? Þórður Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Öruggt ferðasumar hefst með góðum brunavörnum Methúsalem Hilmarsson skrifar Skoðun Hvernig lesum við skoðanagreinar? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Stjórnsýsla Íslands er ekki „allt of lítil“, hún er „lítil og skilvirk“ Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Vatnaskil í markaðssetningu Íslands Pétur Þ. Óskarsson skrifar Skoðun Af hverju hunsa Samfylkingin og Vinstrið umboðsmann barna? Þórður Halldórsson skrifar Skoðun Dómar sem eru ekkert annað en „one way ticket“ á Litla-Hrauni Davíð Bergmann skrifar Skoðun Spyrjum við áfram nýrra spurninga? Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Sigurjón Þórðarson og sannleikurinn Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða áfengisgjaldið? Einar Bárðarson skrifar Skoðun Þegar dýravelferð víkur fyrir hagnaði Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Hver vill borða brauðið? Jón Óskar Hinriksson skrifar Skoðun Hvað varð um planið? Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Íslensk stjórnvöld eiga að virða Árósasamninginn Árni Finnsson,Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Sami hræðsluáróðurinn: EES á Íslandi 1993 og ESB í Svíþjóð 1994 Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Mannréttindi þarf ekki að endurhugsa — þau þarf að virða Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðar sem vopn til að berjast gegn aðild að ESB Micah Garen skrifar Skoðun Beðið eftir aðgerð þar sem kvóti er búinn Dóra Lind Pálmarsdóttir skrifar Skoðun Vandinn talaður burt Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Stór-Ísrael Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Barnamorðingjar eru velkomnir til Íslands Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Hvenær verða sjóðir mikilvægari en félagsmenn? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Obb obb obb Bogi minn 698.500 kr. fyrir að breyta einum litlum flugmiða Kristján Logason skrifar Skoðun Viljum við kvótavæða sjókvíaeldið? Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun ESB eða efnahagsmálin, hvað á að vera forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Sveitarfélög sem nýta gervigreind vel gætu umbreytt þjónustu sinni Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Vertu velkomin, Eydís! Elís Hlynur Grétarsson,Ólöf Helga Jónsdóttir,Jón Kristinn Sverrisson skrifar Skoðun Verkin tala Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Brexit og Ísland - Hvað getum við lært – og hvert eigum við að stefna? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Barnahús er sameiginlegt verkefni Paola Cardenas skrifar Skoðun Ríkisvaldið féll á lyfjaprófi Vilhjálmur H. Vilhjálmsson skrifar Sjá meira
Mikilvæg starfsemi Samhjálpar er og hefur verið leið til betra lífs fyrir marga einstaklinga. Þannig starfi og árangri vill Samhjálp skila áfram til samfélagsins. Starfsemi félagsins hefur alla tíð verið öflug til stuðnings þeim sem minna mega sín í þjóðfélaginu. Margir þekkja til félagsins vegna reksturs Kaffistofu Samhjálpar í Borgartúni þar sem um 65 þúsund máltíðir eru gefnar skjólstæðingum félagsins á hverju ári. Annað stórt verkefni Samhjálpar, sem sjaldnar er í umræðunni, er starfsemi meðferðarheimilisins Hlaðgerðarkots í Mosfellsdal. Þar hafa fjölmargir einstaklingar leitað skjóls á undanförnum rúmum 40 árum vegna áfengis- og/eða fíkniefnavanda og fengið meðferð sem hefur skilað mjög mörgum góðum árangri.Vaxandi þörf fyrir Samhjálp Í okkar fámenna þjóðfélagi er þörfin fyrir hjálparstörf og aðstoð við þá sem af ýmsum ástæðum lenda undir í lífinu, ótrúlega mikil. Áfengis- og fíkniefnavandinn vegur þar þungt og hefur valdið mun meiri vanda og skaða í okkar annars góða samfélagi en margir gera sér grein fyrir. Það er staðreynd að áfengis- og fíkniefnanotkun eykst stöðugt með hörmulegum afleiðingum þar sem meðal annars eðlilegt líf fleiri og fleiri fjölskyldna er lagt í rúst. Þörfin fyrir aðstoð við áfengis- og fíkniefnaneytendur, jafnt yngri sem eldri einstaklinga vex stöðugt þrátt fyrir ýmiskonar velmeinandi forvarnarstörf á umliðnum árum, sem því miður hafa ekki skilað nægilega góðum árangri. Ótrúlega lítið fer fyrir nauðsynlegri umræðu og markvissum aðgerðum til að sporna gegn þessum mikla vanda. Nær daglega má þó sjá og lesa í fjölmiðlum fréttir og frásagnir af ýmsum atvikum, afbrotum, heilbrigðisvandamálum o.þ.h. sem tengjast beint áfengis- og fíkniefnamálum. Því miður er sjaldnar rætt um mögulegar leiðir til lausna.Landssöfnun Samhjálpar Nú blásum við til sóknar hjá Samhjálp. Í ljósi framangreindra aðstæðna hefur stefnan verið sett á að efla starfsemina í Hlaðgerðarkoti með endurbótum og stækkun á húsnæðinu. Elsti hluti húsnæðisins er kominn til ára sinna og þarfnast viðhalds og endurnýjunar. Til að bæta úr því vantar félagið fjármagn og stuðning og því hefur verið ákveðið að leita liðsinnis hjá einstaklingum og fyrirtækjum með landssöfnun til uppbyggingar í Hlaðgerðarkoti og verður landssöfnunin í opinni dagskrá á Stöð 2 hinn 21. nóvember nk. Í undirbúningsvinnu fyrir landssöfnunina höfum við fundið fyrir miklum stuðningi og velvild hjá fyrirtækjum og einstaklingum sem fúslega styðja félagið í mikilvægum verkefnum þess og fyrir það vilja stjórn og starfsmenn færa öllum innilegar þakkir. Við hvetjum alla til að gerast bakhjarlar Hlaðgerðarkots með stuðningi við þetta góða og tímabæra verkefni.
Stjórnsýsla Íslands er ekki „allt of lítil“, hún er „lítil og skilvirk“ Halldór Jörgen Olesen Skoðun
Skoðun Stjórnsýsla Íslands er ekki „allt of lítil“, hún er „lítil og skilvirk“ Halldór Jörgen Olesen skrifar
Skoðun Íslensk stjórnvöld eiga að virða Árósasamninginn Árni Finnsson,Björg Eva Erlendsdóttir skrifar
Skoðun Sami hræðsluáróðurinn: EES á Íslandi 1993 og ESB í Svíþjóð 1994 Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Obb obb obb Bogi minn 698.500 kr. fyrir að breyta einum litlum flugmiða Kristján Logason skrifar
Skoðun ESB eða efnahagsmálin, hvað á að vera forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar? Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Sveitarfélög sem nýta gervigreind vel gætu umbreytt þjónustu sinni Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Vertu velkomin, Eydís! Elís Hlynur Grétarsson,Ólöf Helga Jónsdóttir,Jón Kristinn Sverrisson skrifar
Skoðun Brexit og Ísland - Hvað getum við lært – og hvert eigum við að stefna? Sigurður Sigurðsson skrifar
Stjórnsýsla Íslands er ekki „allt of lítil“, hún er „lítil og skilvirk“ Halldór Jörgen Olesen Skoðun