Enski boltinn

Aron Einar kom inn í byrjunarliðið og Cardiff vann liðið í 2. sæti

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aron Einar Gunnarsson.
Aron Einar Gunnarsson. Vísir/Getty
Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í fótbolta, fékk loksins tækifæri í byrjunarliði Cardiff City í kvöld þegar liðið vann 1-0 sigur á Middlesbrough í ensku b-deildinni.

Þetta var fyrsti leikur Arons Einars í byrjunarliðinu í ensku b-deildinni á tímabilinu en hann hafði verið þrisvar sinnum í byrjunarliði íslenska landsliðsins síðan að enska b-deildin fór af stað.

George Friend skoraði sigurmark Cardiff og eina mark leiksins á 86. mínútu en hann er leikmaður Middlesbrough og sendi boltann í eigið mark.

Joe Mason átti þá skot sem var varið en frákastið fór af George Friend og í markið.

Aron Einar spilaði fyrstu 80 mínúturnar en fór af velli fyrir Stuart O'Keefe. Aron Einar hafði þá spilað með gult spjald frá 65. mínútu leiksins.

Aron Einar hafði ekkert komið við sögu í síðustu tveimur leikjum Cardiff og aðeins spilað í samtals 9 mínútur með liðinu í síðustu átta deildarleikjum liðsins.

Cardiff hefur unnið þrjá síðustu leikina sem Aron Einar hefur komið við sögu.

Middlesbrough var í 2. sæti deildarinnar fyrir leikinn en datt niður í sjötta sæti eftir þetta tap. Cardiff-liðið er nú aðeins stigi og tveimur sætum á eftir í töflunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×