Harmleikur almenninganna Þorsteinn Þorsteinsson skrifar 24. nóvember 2015 15:00 Björk Guðmundsdóttir og Andri Snær Magnason blésu nýlega til blaðamannafundar þar sem þau lýstu áhyggjum sínum af hugmyndum að lagningu raforkusæstrengs til Bretlands. Benti Andri Snær m.a. á að ef Íslendingar virkjuðu allar ár og alla fossa á Íslandi, gæti landið einungis framleitt tíu prósent af orkuþörf Breta. Jafnframt lýstu Björk og Andri sig andvíg Sprengisandslínu, sem reyndar er nátengd sæstrengshugmyndinni enda væri meginhlutverk hennar að flytja orku að sæstrengnum. Umræðan um raforkusæstrenginn náði ákveðnu hámarki við komu Camerons til landsins fyrir skömmu. Landsvirkjun hefur beitt miklu afli og fjármunum við að koma þessari umræðu á kortið. Kostum sæstrengsins hefur t.d. verið haldið á lofti á öllum aðalfundum Landsvirkjunar frá því að Hörður Arnarson tók við sem forstjóri fyrirtækisins árið 2009. Í vor gerði Gallup viðhorfskönnun meðal almennings þar sem könnuð var afstaða landsmanna til lagningar raforkusæstrengs. Niðurstaðan var sú að meirihluti landsmanna var andvígur þessum áformum. Andstaðan jókst svo verulega ef sæstrengurinn kallar á nýjar virkjanaframkvæmdir, en 67% landsmanna voru andvígir í því tilviki. Þessi niðurstaða bendir ótvírætt til þess að í framhaldinu verði hart tekist á um þetta verkefni.Sporin hræða Aðkoma Breta að málinu er áhugaverð, sérstaklega í sögulegu samhengi. Menn muna vel eftir Þorskastríðunum þar sem Bretar sóttu stíft í sjávarauðlind okkar og viðurkenndu ekki rétt Íslands til fiskveiðilögsögu. Skemmt er svo að minnast hryðjuverkalaganna sem Bretar settu á okkur í bankahruninu. Nú sækjast Bretarnir hins vegar eftir því að fá aðgang að orkuauðlindinni okkar. Hvaða pólitíska áhætta er fólgin í því í ljósi sögunnar? Fyrst háðum við fiskveiðistríð við Breta, svo kom fjármálastríð með hryðjuverkalögun. Spurningin er hvort sæstrengurinn gæti leitt til orkustríðs við Breta. Hvernig stæðum við þar að vígi ef Bretarnir ættu sjálfir strenginn eins og langlíklegast er? Þorskveiðistríðin gengu aðallega út á að verja fiskauðlindina gagnvart óhóflegri ágengni Breta. Allir landsmenn eru sammála um að ganga vel um landsins gæði, sbr. sjálfbærni fiskstofna. Hvað með orkuauðlindina? Á að ofnýta hana með því að virkja hverja sprænu í landinu í þágu Breta? Hvað með ferðaiðnaðinn í því samhengi og ímynd landsins sem hreins og óspillts? Þar verður ekki bæði haldið og sleppt.Hruntaktur Harmleikur almenninganna (e. Tragedy of the commons) er áberandi hugtak í umræðunni um sjálfbæra þróun. Hugtakið er notað til þess að skýra hvers vegna sameiginlegar auðlindir eru oft nýttar óhóflega af einstökum aðilum, ef miðað er við heildarhagsmuni samfélagsins. Ein birtingarmynd þessa vandamáls er sú að sameiginlegar auðlindir eru ofnýttar af fyrirtækjum sem hafa óskert aðgengi að þeim. Er Landsvirkjun að setja sig í slíkar stellingar með hugmyndum sínum um sæstreng? Áhugavert er að sjá hvernig umræðan um sæstrenginn hefur þróast. Fjárfestar hafa komið fram á sjónarsviðið og haldið því fram að sæstrengurinn sé arðbær kostur. Sama gildir um greiningardeildir bankanna. Þessi stemning minnir á margt um tímann fyrir hrunið. Þingmenn hafa jafnvel stigið fram og tekið undir söng fjármálaaflanna. Einn þingmaður hélt því meira að segja fram fyrir skömmu að það væri skylda okkar að virkja meira og miðla þeirri orku til annarra landa! Sæstrengshugmyndin er í hnotskurn kapphlaup hagsmunaðila, breskra og íslenskra, þar sem hver og einn hugsar fyrst og fremst um sjálfan sig. Fjármálafyrirtækin spila með þar sem þau vilja komast að kjötkötlunum. Það er hruntaktur í þessu kapphlaupi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson Skoðun Fimm óskir á afmælisdaginn Anna Margrét Hrólfsdóttir Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Fimm óskir á afmælisdaginn Anna Margrét Hrólfsdóttir skrifar Skoðun Seljum ekki Landsvirkjun meðan við getum ráðið því sjálf Júlíus Valsson skrifar Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvenær ætti gjafakort að renna út? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Góð lífskjör og öflugt atvinnulíf í Fjarðabyggð Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar Skoðun Þakkir til kennara frá ráðherra Inga Sæland skrifar Skoðun Leigubremsa innleidd á Íslandi! Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson skrifar Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson skrifar Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar Skoðun Mælum fyrst – hækkum svo Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Þegar skuldir færa völdin til Brussel Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar Sjá meira
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar
Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun