Fréttatilkynning frá stjórn Félags um foreldrajafnrétti Birgir Grímsson skrifar 12. nóvember 2015 09:27 Starfshópur innanríkisráðherra, sem skipaður var til að kanna hvernig jafna mætti aðstöðumun foreldra eftir skilnað, hefur skilað inn skýrslu til Alþingis. Starfshópurinn leggur til að tekið verði upp ákvæði í barnalögum þar sem foreldrum sem fara sameiginlega með forsjá barns og ákveða að ala það upp saman á tveimur heimilum, verði veitt heimild til að semja um skipta búsetu barns að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Skilyrðin eru m.a. góð og víðtæk sátt milli foreldra og að foreldrar búi nálægt hvort öðru, í sama eða aðliggjandi skólahverfi. Einnig að samningurinn verði háður staðfestingu sýslumanns og honum verði heimilt að synja um staðfestingu á skiptri búsetu. Félag um foreldrajafnrétti (FuF) fagnar skilmerkilegri greiningu á mismunun foreldra í skýrslu starfshóps. Skýrslan er afar vel unninn og ber þess merki að raunverulega hafi verið leitast við að jafna stöðu heimila barns. Samkvæmt tillögum starfshóps verður foreldrum á Íslandi loks gert mögulegt að deila með sér ábyrgð og opinberum stuðningi þrátt fyrir að þau búi ekki saman. Þá eru tillögur starfshópsins um skráningu í þjóðskrá til þess fallnar að barn tengist báðum foreldrum sínum áfram þrátt fyrir að foreldrar búi ekki saman. Nái þessar breytingar fram að ganga, þá má segja að þetta verði stærsta skref sem tekið hefur verið á Íslandi í stuðningi við börn sem eiga foreldra á tveimur heimilum frá því sameiginleg forsjá var fyrst lögleidd á Íslandi. FuF telur hinsvegar að skilyrðin sem starfshópurinn setur fyrir heimild til skiptrar búsetu barna allt of þröng og byggja á röngum forsendum og að þau myndi fjárhagslegan hvata fyrir lögheimilisforeldra til að búa til ágreining við umgengnisforeldra sem er skaðlegt fyrir börn. FuF telur niðurstöðurnar gera of lítið til að leysa úr ágreiningi foreldra eftir skilnað og sambúðarslit. FuF telur að umgengni og dvöl barna á heimilum foreldra eigi að ráða því hvort þau séu skráð með skipta búsetu eða ekki. Þannig séu hagsmunir barna best tryggðir enda þarf umgengnisforeldri líka að geta boðið barni sínu gott heimili. FuF telur mikilvægt að horft sé til heildar réttaráhrifa þegar lög eru annars vegar. Eins og fram kemur í nefndarálitinu, þá skal réttur barna ávallt hafður í fyrirrúmi og þá ekki bara þeirra barna sem eiga foreldra sem vinna saman í fullri sátt eftir skilnað, heldur líka þeirra barna sem ekki njóta fullrar samvinnu foreldra sinna. FuF telur að ríkið eigi að stuðla að því að fækka tilefnum til deilna og að lög geti breytt miklu þar um. Það er öllum ljóst að velferð barnsins byggist á því að það búi við góðar aðstæður á báðum heimilum sínum eftir skilnað og því þarf skýran lagaramma sem mismunar ekki heimilunum. FuF vill benda á að nefndin skilgreinir ranglega þegar talað er um „öryggi og stöðugleika” í skýrslunni. Ljóst er að öryggi og stöðugleiki byggist ekki á einu heimili eða einum ákvörðunaraðila, heldur mun frekar skýrum réttindum barns til beggja foreldra sinna og til að búa á tveimur góðum heimilum eftir skilnað. Þess vegna leggur FuF áherslu á að skilyrðin fyrir skiptri búsetu verði túlkuð rúmt, t.d. varðandi nálægð heimilanna og samkomulag foreldra. FuF gagnrýnir harðlega að sýslumanni sé falið að meta hvort skipt búseta komi til greina og að girt sé fyrir það að dómarar megi úrskurða um skipta búsetu barna. FUF bendir á, að hjá sýslumanni eru úrskurðir almennt gerðir af lögfræðingum og fagaðilar í málefnum barna komi ekki að úrskurðum sýslumanna. FuF bendir einnig á að úrskurðir stjórnvalda eru hvergi birtir almenningi og stjórnvöld neita að birta nokkra tölfræði um þá. Jafnframt eru úrskurðir stjórnvalda ekki kæranlegir til dómstóla sem er í andstöðu við allar meginreglur réttarríkis. Að lokum viljum við benda á að í desember 2008 skipaði innanríkisráðherra nefnd til að semja frumvarp til laga um breytingar á barnalögum sem síðar urðu að núgildandi barnalögum. Lögin taka á öllum réttindum barna og foreldra, þar á meðal forræði, lögheimili, umgengni og meðlagi. Nefndin var skipuð þremur konum og engum karli. Skipan innanríkisráðherra í nefndina var brot á jafnréttislögum. FuF telur brýnt að farið verði í heildarendurskoðun á barnalögum og að skipuð verði fjölskipuð nefnd fagaðila sem uppfylli skilyrði jafnréttislaga og henni falið að undirbúa frumvarp til nýrra barnalaga þar sem núgildandi barnalög þjóna ekki hagsmunum barna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson Skoðun Fimm óskir á afmælisdaginn Anna Margrét Hrólfsdóttir Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Fimm óskir á afmælisdaginn Anna Margrét Hrólfsdóttir skrifar Skoðun Seljum ekki Landsvirkjun meðan við getum ráðið því sjálf Júlíus Valsson skrifar Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvenær ætti gjafakort að renna út? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Góð lífskjör og öflugt atvinnulíf í Fjarðabyggð Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar Skoðun Þakkir til kennara frá ráðherra Inga Sæland skrifar Skoðun Leigubremsa innleidd á Íslandi! Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson skrifar Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson skrifar Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar Skoðun Mælum fyrst – hækkum svo Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Þegar skuldir færa völdin til Brussel Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar Sjá meira
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar
Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun