Aldrei einfaldara að taka þátt í Bréfamaraþoninu Bryndís Bjarnadóttir skrifar 12. nóvember 2015 13:16 Á árlegu Bréfamaraþoni Amnesty International í kringum 10. desember, sem er alþjóðlegur mannréttindadagur, setja hundruð þúsunda einstaklingar, frá 150 löndum og landsvæðum, nafn sitt á milljónir bréfa og korta til stjórnvalda sem brjóta mannréttindi og þrýsta á umbætur. Fjöldinn allur skrifar einnig stuðningskveðjur til þolenda mannréttindabrota og veita þeim þannig styrk og vissu um að umheimurinn hafi ekki gleymt þeim. Bréfamaraþon Amnesty ber nafn með rentu þar sem um stærsta mannréttindaviðburð heims er að ræða. Það hefur aldrei verið einfaldara að taka þátt í Bréfamaraþoninu. Ný vefsíða Íslandsdeildar Amnesty International hefur litið dagsins ljós, www.amnesty.is þar sem með einföldum hætti er hægt að skrifa undir tólf mál einstaklinga, sem sætt hafa mannréttindabrotum, með einum smell eða velja þau mál sem fólk kýs að skrifa undir. Það eina sem þarf að gera er að fylla út nafn og kennitölu og Íslandsdeild Amnesty sendir bréfin til stjórnvalda í þínu nafni. Hér er um afar einfalt en áhrifaríkt aðgerðaform að ræða.Að venju býðst fólki einnig að mæta á þá staði á landinu sem næstir þeim eru, skrifa undir aðgerðakort á staðnum, senda stuðningskveðjur og njóta notalegrar aðventustemningar. Hægt er að kynna sér þá staði, víðs vegar um landið, sem halda Bréfamaraþon á nýju síðu samtakanna. Á hverju ári bera bréfin og undirskriftirnar árangur.Raunverulegar breytingar eiga sér stað á lífi þolenda mannréttindabrota – lífi er bjargað! Samviskufangi er leystur úr haldi eða hlýtur nauðsynlega aðhlynningu. Fangi á dauðadeild er náðaður. Þolandi pyndinga sér réttlætinu fullnægt eða harðneskjulegri löggjöf er breytt. Íslendingar hafa ekki látið sitt eftir liggja með þátttöku Bréfamaraþoni samtakanna og í fyrra voru 75.000 bréf, kort og undirskriftir sendar til stjórnvalda víðs vegar um heiminn og umbóta krafist.Á bréfamaraþoni samtakanna í ár er hægt bregðast við vegna 12 áríðandi mála sem þurfa á athygli landans að halda. Meðal þeirra er mál Albert Woodfox sem hefur setið í fangelsi í Louisiana í Bandaríkjunum í 43 ár, þar af 40 ár í einangrun. Engar áþreifanlegar sannanir tengja Woodfox við glæpinn sem hann er ákærður fyrir.Búrkína Fasó er einnig í brennidepli bréfamaraþonsins í ár en þar eru þúsundir ungra stúlkna þvingaðar í hjónaband á hverju ári. Í El Salvador er einnig brotið gróflega á mannréttindum kvenna og stúlkna þar sem blátt bann ríkir við fóstureyðingum í landinu. Mál Teodora del Carmen verður sérstaklega tekið fyrir en hún fæddi andvana barn árið 2007 og var í kjölfarið handtekin og dæmd í 30 ára fangelsi fyrir morð að yfirlögðu ráði. Allir þessir þolendur mannréttindabrota þurfa sárlega á aðgerðum þínum að halda. Það kann að vera auðvelt fyrir stjórnvöld að hunsa eitt bréf en þegar milljónir slíkra bréfa berast er erfitt að líta undan.Gott dæmi um raunverulega breytingu á lífi þolanda mannréttindabrots er saga Moses Akatugba, ungs manns frá Nígeríu sem var pyndaður grimmilega og dæmdur til dauða með hengingu aðeins 16 ára gamall fyrir það eitt að stela þremur farsímum. Á síðasta ári þrýstu rúmlega 300.000 manns, í bréfamaraþoni samtakanna, á fylkisstjórann á óseyrum Nígerfljóts að náða Moses og í maí 2015 lét fylkisstjórinn undan. Moses er nú frjáls maður.Hann lét eftirfarandi orð falla þegar ljóst var að hann yrði náðaður:„Ég er djúpt snortinn. Ég þakka AmnestyInternational og aðgerðasinnum samtakanna fyrir stórkostlegan stuðning sem gerðu mig að sigurvegara í þessum aðstæðum. FélagarAmnestyInternational og aðgerðasinnar eru hetjurnar mínar. Ég fullvissa þá um að þessi ótrúlegi stuðningur sem þeir hafa sýnt mér er ekki fyrir borð borinn... Ég heiti því að gerast aðgerðasinni sjálfur og berjast fyrir aðra. Viltu ganga til liðs við mig? Viltu berjast fyrir frelsi annarra sem eru ranglega fangelsaðir með þátttöku í BréfamaraþoniAmnestyí ár?“BréfamaraþonAmnestyInternational er vitnisburður um það sem samtökin standa fyrir – baráttu einstaklinga fyrir aðra einstaklinga, hverjir sem þeir eru og hvaðan sem þeir koma! Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Umhverfisvænasti orkugjafinn gleymdist Þórhallur Hákonarson Skoðun Aðdáunarverð þrautseigja Grindvíkinga Sigurður Helgi Pálmason Skoðun Tækifæri í stað takmarkana! Bergljót Borg Skoðun Valdhroki bæjarstjórans í Kópavogi Helga Jónsdóttir Skoðun Miðflokkarnir tveir í Kópavogi Pétur Björgvin Sveinsson Skoðun Ég er 57 ára og tilbúinn til að leggja mitt af mörkum — en fæ ekki tækifærið Gunnar Gíslason Skoðun Hvað fá foreldrar í Kópavogi fyrir 450 þúsund króna barnaskatt? Dagbjört Hákonardóttir,Eydís Inga Valsdóttir Skoðun Menntaforystan er að plata þig Andri Þorvarðarson Skoðun Hvar er menningarhús Hafnfirðinga? Karólína Helga Símonardóttir Skoðun 5. maí alþjóðadagur ljósmæðra Unnur Berglind Friðriksdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Fjölskyldubærinn Akranes Sigurður Vopni Vatnsdal skrifar Skoðun Tækifæri í stað takmarkana! Bergljót Borg skrifar Skoðun Umhverfisvænasti orkugjafinn gleymdist Þórhallur Hákonarson skrifar Skoðun Aðdáunarverð þrautseigja Grindvíkinga Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Veistu á hvaða lyfjum þú ert? Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Slæleg hagsmunagæsla meirihluta bæjarstjórnar – það þarf að gera mun betur Unnar Jónsson skrifar Skoðun Menntaforystan er að plata þig Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Viltu borga meira fyrir að leggja bílnum þínum í bílastæðahúsi? Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Réttindabarátta fatlaðs fólks í 65 ár Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Eitt markmið, betra Hveragerði Guðjón Óskar Kristjánsson,Jónas Guðnason,Lárus Jónsson skrifar Skoðun Þegar áframhald verður bakslag Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sjálfstætt líf og fimm spurningar sem skipta öllu Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samvinnuhugsjón í leikskólamálum Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun „Ég var nú bara að grínast!“ Kristján Freyr Halldórsson skrifar Skoðun Hvernig ræktum við frið í huga fólks? Sæunn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Borgin skapi hlutastörf Stefán Pálsson skrifar Skoðun Gleymum ekki hestamönnum og skátum Þorsteinn Hjartarson skrifar Skoðun Er gott að eldast á Akranesi? Hugrún Eva Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Eitt samtal getur breytt deginum Alda Björk Harðardóttir skrifar Skoðun Ég er 57 ára og tilbúinn til að leggja mitt af mörkum — en fæ ekki tækifærið Gunnar Gíslason skrifar Skoðun Reykjanesbrautin - við leysum hnútinn Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Valdhroki bæjarstjórans í Kópavogi Helga Jónsdóttir skrifar Skoðun Menningin er hjartað í Hafnarfirði Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Lækkun gjalda: skref í rétta átt, en enn langt í land Valborg Ösp Árnadóttir Warén skrifar Skoðun Sveitarfélög á Íslandi og Evrópusambandið Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Gefum sköpunargáfu barna það pláss sem hún á skilið Guðrún Lína Thoroddsen skrifar Skoðun Hvað fá foreldrar í Kópavogi fyrir 450 þúsund króna barnaskatt? Dagbjört Hákonardóttir,Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Skólaskeyti til Garðbæinga! Harpa Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Verkalýðsfélög í faðmi hins opinbera Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Gæði kennslu: Farsæld sem markmið menntunar Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir skrifar Sjá meira
Ég er 57 ára og tilbúinn til að leggja mitt af mörkum — en fæ ekki tækifærið Gunnar Gíslason Skoðun
Hvað fá foreldrar í Kópavogi fyrir 450 þúsund króna barnaskatt? Dagbjört Hákonardóttir,Eydís Inga Valsdóttir Skoðun
Skoðun Slæleg hagsmunagæsla meirihluta bæjarstjórnar – það þarf að gera mun betur Unnar Jónsson skrifar
Skoðun Eitt markmið, betra Hveragerði Guðjón Óskar Kristjánsson,Jónas Guðnason,Lárus Jónsson skrifar
Skoðun Ég er 57 ára og tilbúinn til að leggja mitt af mörkum — en fæ ekki tækifærið Gunnar Gíslason skrifar
Skoðun Hvað fá foreldrar í Kópavogi fyrir 450 þúsund króna barnaskatt? Dagbjört Hákonardóttir,Eydís Inga Valsdóttir skrifar
Skoðun Gæði kennslu: Farsæld sem markmið menntunar Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir skrifar
Ég er 57 ára og tilbúinn til að leggja mitt af mörkum — en fæ ekki tækifærið Gunnar Gíslason Skoðun
Hvað fá foreldrar í Kópavogi fyrir 450 þúsund króna barnaskatt? Dagbjört Hákonardóttir,Eydís Inga Valsdóttir Skoðun