Matur

Rauðrófu- og geitaostssalat með sætum valhnetum

Sjónvarpskokkurinn Eyþór Rúnarsson gefur gómsætar uppskriftir á Stöð 2 fram að jólum.

Rauðrófu- og geitaostssalat með sætum valhnetum, perum og fennel

Pikklaðar rauðrófur

6 stk. meðalstórar rauðrófur

2 l af vatni

300 ml hvítvínsedik

400 g sykur

2 stk. lárviðarlauf

1 tsk. fennelfræ

2 stk. anísstjörnur

2 stk. negulnaglar

Setjið allt nema rauðrófurnar saman í pott og sjóðið upp á því. Skrælið rauðrófurnar og skerið þær í ca. 4 cm bita. Setjið rauðrófurnar í vökvann og sjóðið við vægan hita þar til þær eru mjúkar í gegn. Takið rauðrófurnar upp úr vökvanum og kælið bæði rófurnar og vökvann í sitt hvoru lagi. Setjið rauðrófurnar svo út í vökvann í lokað ílát. (Þetta geymist í margar vikur í kæli svo lengi sem vökvinn flýtur yfir.) Áður en rauðrófurnar eru bornar fram eru þær þerraðar og skornar í fallega bita.

Sætar valhnetur

150 g valhnetur

1 l vatn

2 tsk. salt

2 msk. flórsykur

Sjávarsalt

Sjóðið upp á vatninu með saltinu í. Setjið valhneturnar í vatnið og sjóðið í ca. 1 mín. Hellið vatninu af hnetunum og þerrið þær á pappír. Setjið hneturnar í skál með flórsykrinum og veltið þeim vel upp úr honum. Hitið pott með olíu í 160 gráður og steikið hneturnar í ca. 6 mín eða þar til þær eru orðnar gylltar og fallegar að utan. Takið hneturnar upp úr olíunni og setjið á bökunargrind, saltið eftir smekk og látið kólna. Geymið í lofttæmdum umbúðum.

Meðlæti

2 stk. perur

1 stk. fennel

8 stk. radísur

140 g geitaostur

Salatblanda

Ólífuolía – Himneskt

Balsamikedik – Himneskt

Skerið fennelið og radísurnar örþunnt í mandólíni eða með hníf. Skrælið og skerið perurnar í kubba. Setjið salatblönduna í fat og raðið öllu meðlætinu ofan á það, endið á að setja ostinn og hneturnar ofan á salatið. Berið fram með ólífuolíu og góðu balsamikediki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×