Umferð hefur gengið ágætlega á höfuðborgarsvæðinu í morgun, þrátt fyrir mikla hálku og snjó. Samkvæmt umferðardeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sátu einhverjir bílar fastir í snjónum hér og þar. Umferðin hefur gengið í rólegheitum og ökumenn eru sagðir hafa sýnt þolinmæði og allt gekk stóráfallalaust.
Þó þurfti lögreglan að aðstoða flutningabíl í morgun í brekkunni við Gullinbrú þar sem mikil hálka er. Snemma í morgun var umferðin þar nánast stopp þar sem nokkrir bíla spóluðu í brekkunni og komust ekki áfram.
Umferð gengið ágætlega
Samúel Karl Ólason skrifar

Mest lesið
Fleiri fréttir
