Innleiða núvitund í framhaldsskólana 8. nóvember 2014 12:00 Bryndís stóð fyrir innleiðingu núvitundar í Flensborgarskóla við góðar undirtektir. „
Við byrjuðum með núvitundarnámskeið haustið 2012 fyrir kennara skólans. Þetta fékk svo frábærar undirtektir að við héldum fleiri námskeið, og núna á vorönn 2014 héldum við fyrsta námskeiðið fyrir nemendur,“ segir Bryndís Jóna Jónsdóttir, mannauðsstjóri í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði. Flensborg hefur á síðustu árum unnið mikið frumkvöðlastarf í heilsuvitund í framhaldsskólum, meðal annars með því að innleiða Núvitund í skólana. „Námskeiðið er fyrst og fremst hugsað sem heilsuverndandi verkefni til langs tíma, og stendur til að setja námskeiðið inn í lífsleiknitíma hjá annars árs nemendum eftir áramót,“ segir Bryndís. Hún ásamt þremur öðrum fór til Oxford að læra núvitund, til þess að öðlast kennsluréttindi í faginu. „Núvitundin hefur svo fjölbreytt áhrif og ávinningur hennar er á mörgum sviðum. Það er svo mikilvægt fyrir nemendur að fá að kynnast þessu verkfæri sem er síðan þeirra að notfæra sér. Streita og þunglyndi eykst oft á menntaskólaárunum og því er þetta mikilvægur liður í heilsuvernd nemenda.“ Bryndís segir að viðbrögð við námskeiðinu hafi verið jákvæð og segir flesta finna mun á sér. „Það er ekki komin nógu mikil reynsla á þetta hjá okkur til þess að sjá mælanlegan mun, enda höfum við ekki mælt þunglyndi eða kvíða fyrir námskeiðin. Hins vegar sýna erlendar rannsóknir að þetta hefur mikil og góð áhrif á heilsuna. En ég get fullyrt að þetta hefur áhrif, það er eitthvað sem breytist innra með manni.“
Mest lesið Hitinn náði nýjum hæðum á klúbbnum Lífið Leikkonan Diane Ladd er látin Lífið Hætt að nota föt til að fela sig Tíska og hönnun „Ég sótti ekki einu sinni um háskóla á Íslandi“ Lífið Krýndur „kynþokkafyllsti maður ársins“ Lífið Fékk hvorki að setja eigið nafn né dulnefni á þættina sína Lífið Dagur Sig genginn í það heilaga Lífið Fyrrverandi ráðherra Dana: „Þið voruð aldrei nýlenda“ Menning Klæddi sig upp sem hjákona eiginmannsins Tíska og hönnun Floppin í haust og sjónvarpslaus sjónvarpsverðlaun Menning Fleiri fréttir Krýndur „kynþokkafyllsti maður ársins“ Breiðholtsskóli og Hagaskóli áfram í úrslit í Skrekk Leikkonan Diane Ladd er látin Hitinn náði nýjum hæðum á klúbbnum „Ég sótti ekki einu sinni um háskóla á Íslandi“ Sjö lykilþættir að árangursríkari samskiptum Stjörnulífið: „Ef fólk hættir að gagnrýna mig svelt ég“ Hefur farið í gegnum sambandsslit, gjaldþrot og fjárkúgunarmál frammi fyrir þjóðinni Leikstýrir kærastanum í stærsta harmleik sögunnar Fékk hvorki að setja eigið nafn né dulnefni á þættina sína Spenna á rafíþróttaæfingu fyrir eldri borgara Dagur Sig genginn í það heilaga Svona er kynlífsþjónusta á Íslandi Tók tíu klukkustundir að komast í búninginn Krakkatían: Dóra landkönnuður, Neyðarlínan og „borgin eilífa“ Kyngdi stoltinu og fjölmargir buðu fram nýra Tchéky Karyo látinn Stjörnurnar á hrekkjavökunni: Louvre-þjófur og vampírur Fréttatía vikunnar: Ríkislögreglustjóri, fellibylur og rasisti Láta forræðishyggju hinna fullorðnu ekki fipa sig Heillandi raðhús Evu Maríu og Trausta til sölu Nýr skemmti- og spjallþáttur á Sýn Fundin eftir sjö vikur á vergangi: „Takk hver sem þú ert“ Fresta hrekkjavöku til að tryggja öryggi lítilla skrímsla Stjörnurnar skinu skært á sögulegum sjónvarpsverðlaunum Atli Steinn fann ástina á ný „Síðasta flugtak“ Play í Gamla bíói Már Gunnars genginn út Verk Þórdísar Erlu munu prýða auglýsingaskilti borgarinnar Steingleymdi að taka niður sólgleraugun Sjá meira