Húðflúraður gospelkór syngur jólalög Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 18. desember 2014 15:30 Margir kórmeðlimir gospelkórsins skarta húðflúrum. mynd/folkogflur.is „
Einn morguninn þegar ég var að setja morgunmatinn á borðin sá ég að tveir þriðju kórmeðlima voru með húðflúr,“ segir Jóna Hrönn Bolladóttir, sóknarprestur og verkefnastjóri Gospelkórs Jóns Vídalíns. Gospelkórinn fór á dögunum í æfingabúðir og sá Jóna um matseld fyrir kórmeðlimi, þegar kórmeðlimir tíndust inn í morgunmat rak hún augun í að fjöldi þeirra skartaði litríkum húðflúrum. „Ég hef aldrei séð svona samansafn af fólki með jafn litríkar myndir á eigin skinni,“ segir hún hlæjandi. Í kjölfarið datt henni í hug að láta mynda húðflúr kórfélaga í stað hinnar hefðbundnu kórmyndar og nota til þess að auglýsa jólatónleika kórsins. Gospelkórinn hefur verið starfræktur frá árinu 2006 og er aldursbil kórmeðlima frá 16-30 ára en Davíð Sigurgeirsson er kórstjóri. „Krakkarnir koma alls staðar að, úr ýmsum mennta- og fjölbrautaskólum,“ segir Jóna, en hún segir gospeltónlist mikinn gleðigjafa. „Þetta er gleði og sálartónlist. Í henni er ákveðið frelsi og það er svo gaman þegar þau eru að syngja,“ segir Jóna, en lagavalið á jólatónleikunum verður fjölbreytt og meðal annars verður flutt jólalag með texta eftir tenórinn Sigurð Breiðfjörð Þorsteinsson sem er einn kórmeðlima. Jólatónleikar gospelkórs Jóns Vídalíns verða haldnir í hátíðarsal Fjölbrautaskólans í Garðarbæ í kvöld klukkan átta.
Mest lesið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Lífið samstarf Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Lífið Taskmaster Ísland snýr aftur Lífið Fleiri fréttir Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Sjá meira