Íslendingur í Austur-Úkraínu: Hér er mikil hræðsla Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 21. apríl 2014 19:45
Íslendingur, sem dvelur í austurhluta Úkraínu, segir að uppreisnarhópar leggi nú kapp á að sprengja upp friðarsáttmála sem skrifað var undir í Genf í síðustu viku vegna stigvaxandi átaka í landinu. Hann segir mikla hræðslu á svæðinu. Fulltrúar Evrópusabandsins, Bandaríkjanna, Úkraínu og Rússlands skrifuðu undir samkomulagið. Lítið virðist þó hafa breyst frá því það var undirritað, og í dag sakaði utanríkisráðherra Rússlands stjórnvöld í Kænugarði um að brot á samningnum með því að grípa ekki til aðgerða til að stöðva ólöglega uppreisnarhópa og öfgaþjóðernissinna, sem hann segir ráða lögum og lofum í austurhéruðunum. Hermann Valsson er búsettur í borginni Sumy. Hann segir að fólk óttist að uppreisnarhópum takist að fella friðarsáttmálann úr gildi. „Það er mikil hræðsla í fólki. Það eru mörg öfl sem eru að reyna að sprengja um sáttmálann sem var gerður í Genf. Þá erum við að horfa til aðskilnaðarsinna, úkraínskra öfgahópa og hersins,“ segir Hermann. Forsetakosningar verða í Úkraínu 25. maí næstkomandi, en síðan Viktor Janókóvitsj forseta var steypt af stóli hefur Olexander Tjortjinov verið settur forseti í bráðabyrgðastjórn landsins. Hermann segir fólk binda miklar vonir við kosningarnar, en marga óttast að stríð brjótist út áður en hægt verður að ganga til kosninga. „Grimmdin og hræðslan í austurhluta Úkraínu er vegna þess að öfgahóparnir eru að reyna að sprengja allt upp áður en niðurstöður kosninganna liggja fyrir. Það er bara vonandi að það gerist ekki.“ segir Hermann.
Mest lesið Bein útsending: Kosningasjónvarp Stöðvar 2 Innlent Forsetavaktin: Sjöundi forseti lýðveldisins verður kjörinn Innlent Segir klútabyltinguna vera hafna Innlent Telur taktíska kosningu hafa unnið gegn sér Innlent Katrín sér ekki eftir framboði sínu Innlent Fyrstu tölur úr Reykjavík suður: Halla Tómasdóttir með flest atkvæði Innlent Fyrstu tölur úr Reykjavík norður: Halla Tómasdóttir er efst Innlent Mætti á kjörstað en fékk þau svör að hún væri búin að kjósa Innlent Eldgosið í beinni útsendingu Innlent Þakklát og telur fylgið hafa farið á dreifingu vegna fjölda frambjóðenda Innlent Fleiri fréttir Fjöldi loftárása á orkuver víðsvegar um Úkraínu Friðartillaga Ísraela sem Biden kynnti virðist fá hljómgrunn „Við búum í fasísku ríki“ Segjast hafa skotið á flugmóðurskip eftir loftárásir Þarf að greiða fyrrverandi 137 milljarða í kjölfar framhjáhalds Ólíklegt að Trump fari í fangelsi Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Bakhjarlar Úkraínu leyfa árásir í Rússlandi Heimilar notkun vopna frá Bandaríkjunum á rússneska grund Trump sakfelldur fyrir skjalafals í þagnargreiðslumáli Veita katalónskum aðskilnaðarsinnum sakaruppgjöf Stígur ekki til hliðar vegna umdeildra fána Gæsir og steggir að buga bæjaryfirvöld sem banna nekt og typpabúninga Svörtum vísað frá borði þegar kvartað var undan líkamslykt Ísraelsmenn taka yfir landamærin að Egyptalandi Flugvélin féll um 54 metra á fimm sekúndum Kviðdómendur leggjast undir feld í dag Gefa Úkraínumönnum eftirlitsflugvélar Útnefna Biden rafrænt til að koma honum örugglega á kjörseðilinn Fær ekki að bjóða sig fram fyrir Verkamannaflokkinn Þingmeirihluti ANC í hættu í Suður-Afríku Íbúar varaðir við rusl- og skítabelgjum frá Norður-Kóreu Segja árásir og aðgerðir Ísrael enn innan „rauðu línanna“ De Niro kallaði Trump skrímsli fyrir utan dómshúsið „Við höfum ekkert“ Ógiltu neitunarvald forseta til að koma fjölmiðlalögum í gegn Biðst afsökunar á ummælum um „faggaskap“ Yfir fimmtíu stig í hitabylgju í Pakistan Pólverjar víggirða landamærin í austri Forseti Perú kærður fyrir mútuþægni Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins Sjá meira
Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins