Framleiða þýskan raunveruleikaþátt Gunnar Leó Pálsson skrifar 5. júní 2014 09:00 Palina Rojinski stýrir þýska raunveruleikaþættinum sem New Age Icelandic Films sér um framleiðslu á. nordicphotos/getty „
Við sjáum um framleiðsluna hér heima ásamt vinkonu okkar, Dóru Lenu Christians því það eru sumir hlutir sem ekki er hægt að sinna frá öðru landi. Þegar tökuliðið og erlendu framleiðendurnir koma til landsins þá verðum við með þeim á setti og fylgjum þeim þar til þau fara aftur út,“ segir Unnsteinn Garðarsson, einn af stofnendum íslenska framleiðslufyrirtækisins New Age Icelandic Films en fyrirtækið sér um framleiðslu þýskra raunveruleikaþátta sem bera nafnið Offline. Ásamt Unnsteini eiga þeir Ásþór Aron Þorgrímsson og Gunnar Gunnarsson einnig hlut í fyrirtækinu. Stjórnandi þáttarins er Palina Rojinski en hún er þekkt í heimalandi sínu. „Hún er þekkt í Þýskalandi sem leikkona, DJ, bloggari og partídrottning eins og henni er lýst,“ bætir Unnsteinn við.Unnsteinn Garðarsson.mynd/Marinó FlóventHann segist lítið mega tjá sig um þáttinn að svo stöddu. „Þetta er fyrsta serían af þessum þýska raunveruleikaþætti, það er það eina sem við getum sagt í bili. Tökur fara fram hér á landi um miðjan júnímánuð.“ Þeir félagar eru einnig með tækjaleigu með búnaði sem ætlaður er til framleiðslu kvikmynda. „Við erum búnir að vera í því að koma tækjaleigunni okkar, Indie Rental í gang undanfarið. Við fjárfestum í tækjabúnaði sem er hugsaður meira fyrir verkefni með minna fjármagn þar sem mikill niðurskurður er til kvikmyndageirans hérlendis. Með því að taka þetta þýska verkefni að okkur getum við fjárfest í auknum búnaði,“ útskýrir Unnsteinn. Fyrir skömmu vann fyrirtækið tónlistarmyndband fyrir íslensku hljómsveitina Benny Crespo's gang og tóku þeir félagar einnig upp og klipptu styrktartónleika Amnesty.
Mest lesið Hvað kýs fræga fólkið? Lífið Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Lífið Hvað veistu um… Dolly Parton? Lífið Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Bíó og sjónvarp Rödd Eyrnaslapa og Optimusar Prime er öll Bíó og sjónvarp Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Lífið Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Lífið Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Lífið Líkindi með Grand Theft Auto og Red Dead Redemption Leikjavísir Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Lífið Fleiri fréttir Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Myndaveisla: Litagleði og lögregla á Tónaflóði á Arnarhóli Sjá meira