Tvídtúr í Reykjavík Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar 5. júní 2014 13:30 Alexander Schepsky er doktor í sameindalíffræði og eigandi Reiðhjólaverslunarinnar Berlin sem hann segir í raun vera herrafataverslun á hjólum. mynd/valli
Tweed Ride Reykjavík fer fram á laugardag. Þá verður hjólað í rólegheitum um höfuðstaðinn í spariklæðnaði bresks hefðarfólks. „Tilgangurinn er að hittast og njóta þess að hjóla um miðbæ Reykjavíkur í sparifötunum. Það er mjög svo frábrugðið því að hjóla á fjöll eða úti í mó í spandex-gallanum,“ segir Þjóðverjinn Alexander Schepsky, einn af aðstandendum hjólatúrsins Tweed Ride Reykjavík. „Tweed Run varð til í Lundúnum árið 2009 þegar nokkrir reiðhjólafélagar ákváðu að hjóla um borgina í sínu fínasta pússi. Það vatt fljótt upp á sig og hefur siðurinn náð útbreiðslu um allan heim,“ segir Alexander sem íslenskaði tvídtúrinn í fyrsta sinn sumarið 2012. Þátttakendur Tweed Ride Reykjavík mæla sér mót við Hallgrímskirkju klukkan 13 á laugardag, íklæddirsígildum, virðulegum fatnaði og drögtum í anda bresks hefðarfólks. Síðan hjóla þeir af stað á klassískum, virðulegum borgarhjólum. „Þegar við hjólum fylktu liði er það fögur sjón að sjá og gleður augu vegfarenda,“ segir Alexander. „Á Íslandi er yfirleitt litið á hjól sem íþróttatæki, eins og fjallahjól og keppnishjól, en upprunalega var reiðhjólið hugsað sem farartæki til að koma fólki á milli staða. Með Tweed Ride viljum við benda borgarbúum á að hægt sé að hafa yndi af rólegum hjólreiðum og meðtaka umhverfi og mannlíf í slíkum yndistúr því Reykjavík er frábær hjólaborg með endalaust skemmtilegar hjólaleiðir.“Það er augnayndi að fylgjast með klæðaburði hjólreiðafólks í Tweed Ride. Síðast hjóluðu níutíu manns um miðbæinn og nú stefnir fjöldinn í 120 hjólreiðamenn.Þægilegur fjölskyldurúntur Áður en hjólað er frá Hallgrímskirkju býður Dr. Bæk fría hjólaskoðun og Bike Brothers þrífa hjólin. Klukkan 13.30 er hópmyndataka og svo er stigið á pedalana klukkan 13.45. „Við hjólum saman niður Laugaveg og um miðbæinn, förum í pikknikk á sólpalli Satt á Hótel Natura og endum á Kexi Hosteli í „high tea“ með enskum samlokum og smákökum að breskum sið og reynum að vera svolítið ensk í okkur,“ segir Alexander, fullur tilhlökkunar. Á Kexi Hosteli verður best klæddi herramaðurinn verðlaunaður af Herrafataverslun Kormáks & Skjaldar, best klædda daman hlýtur verðlaun frá versluninni Geysi og fallegasta hjólið fær verðlaun frá Reiðhjólaversluninni Berlin. „Stemningin er einstaklega létt og skemmtileg þar sem safnast saman fólk með sameiginlegt áhugamál, sem er að klæðast fínum fötum og nota hjól sem farartæki. Þá fer feimnin af fólki og kjaftar á því hver tuska,“ segir Alexander, hvergi banginn við að hjóla í sumarhita í tvídi, sem er gróft ullarefni. „Íslenskt sumar verður aldrei svo heitt að manni verði of hlýtt í tvíd-fötunum. Við förum líka hægt yfir og njótum þess að skoða borgarlandslagið, gömul hús og mannlíf á þægilegum rúnti sem hæfir öllum í fjölskyldunni.“ Taka skal fram að allar gerðir hjóla eru velkomnar í Tweed Ride Reykjavík 7. júní. Skráning og upplýsingar á tweedridereykjavik.weebly.com og á Facebook.
Mest lesið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Harry vill sættast við fjölskylduna Lífið Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Menning Fleiri fréttir Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Sjá meira