Dauðhrædd og hágrátandi eftir að vagnstjóri tók af henni mynd Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 21. janúar 2014 06:45 Móðirin segir vagnstjórann hafa frelsissvipt dótturina með því að neita að opna aftari hurð vagnsins þegar hún ætlaði út. vísir/arnþór
Strætisvagnabílstjóri fékk áminningu eftir að hann tók ljósmynd af 14 ára stúlku í vagninum sem hann segist hafa talið ekki vera með gildan strætómiða. Hann var leystur frá störfum tímabundið á meðan málið var rannsakað en sneri síðan aftur til starfa. Móðir stúlkunnar segist mjög ósátt við þau svör sem hún hefur fengið frá Strætó bs. „Ég er bara búin að fá nóg,“ segir Jóna Björg, móðir stúlkunnar. „Dóttir mín kemst ítrekað ekki leiðar sinnar og frelsissviptingin heldur áfram. Í tvígang hafa yfirmenn Strætó talið sig hafa útkljáð þetta mál. Siðferðiskennd þeirra er greinilega ekki á háu plani þegar börn eiga í hlut.“Hjá sálfræðingi vegna atviksins Jóna segir vagnstjórann hafa frelsissvipt dóttur sína með því að neita að opna aftari dyr vagnsins þegar hún ætlaði út. Hann hafi tekið upp myndavél, sagt henni að koma til sín og smellt af henni mynd. Að því loknu hafi dóttirin hlaupið út um fremri dyr vagnsins sem hafi verið opnar. Jóna segir dóttur sína haldna miklum kvíða eftir atvikið og að hún þurfi að fara til sálfræðings vegna þess. „Áður en þetta gerðist var hann búinn að vera að kommenta á útlit hennar, segja henni hvað hún væri hugguleg og myndarleg stúlka. Þegar hún kom svo heim þetta kvöld var hún dauðhrædd og hágrátandi, spyrjandi sjálfa sig hvað hann ætlaði að gera, hvort hann ætlaði að keyra eitthvert með hana og gera henni eitthvað.“Íhugar að lögsækja Strætó Atvikið átti sér stað í Kópavogi í nóvember á síðasta ári og sama kvöld hafði Jóna samband við Strætó. Daginn eftir fóru mæðgurnar til lögreglu þar sem skýrsla var tekin af dótturinni. „Strætó álítur að þar sem hann hafi ekki meitt hana líkamlega þá fái hann að halda starfinu. Ég er búin að reyna að vinna með Strætó til þess að þessum manni verði vikið af leið. Dóttir mín þorir ekki að stíga upp í vagninn þegar hann er að keyra og hann hefur ekki séð sóma sinn í að biðjast afsökunar og biðja sjálfur um að víkja.“ Jóna segir bekkjarsystur dóttur sinnar einnig hafa lent í manninum, og eflaust fleiri börn. Hún segist vera að íhuga að lögsækja Strætó bs.Ljóst að vagnstjórinn braut af sér í starfiKolbeinn Óttarsson Proppé, upplýsingafulltrúi Strætó bs., segir að Strætó harmi málið. Vagnstjórinn hafi verið leystur frá störfum, í samráði við akstursaðilann, á meðan málið var rannsakað. Skýrsla hafi verið tekin af vagnstjóranum, auk þess sem rætt hafi verið við yfirmann hans, talað við lögreglu og ráða leitað hjá lögmanni. „Það er ljóst að vagnstjórinn braut af sér í starfi með því að taka mynd af stúlkunni og skiptir þá engu að hann telji sig hafa verið að afla sönnunargagna um að hún væri að svindla sér inn með barnamiðum. Vagnstjórinn hefur fengið áminningu.“ Kolbeinn segir að Strætó telji, í samráði við akstursaðilann sem viðkomandi vagnstjóri vinnur hjá, sér ekki stætt á því að aðhafast frekar í málinu.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Bíði og bíði eftir Bjarna Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Sjá meira