Barnsfaðirinn vildi borga fyrir fóstureyðingu Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 8. júlí 2014 12:00 mynd/úr einkasafni „
Ég hef ekki átt auðveldustu meðgönguna og líklega eru þær margar þjáningasystur mínar þarna úti. Nú hef ég verið sett í straff frá öllu sem ætti að teljast eðlilegt fyrir flestum eins og að vinna eða bara almennt vera of mikið á ferðinni,“ skrifar Dagmar Rós, 22 ára kona, í pistli á vefsíðunni monroe.is. Pistillinn hefur vakið talsverða athygli en í honum fer Dagmar yfir meðgönguna. Hún er gengin 32 vikur með sitt fyrsta barn en þegar hún fékk það staðfest að hún væri ólétt ákvað hún strax að eiga barnið. „Rétt í kringum jólin er ég búin að vera aum í brjóstunum og orðin nokkrum dögum of sein og var með þessa tilfinningu um að ég væri ófrísk en trúði því samt ekki þar sem líkurnar voru ekki góðar um að ég gæti orðið ófrísk útaf búið var að taka annan eggjaleiðarann og hinn ekki í góðu standi. Milli jóla og nýárs kíkti ég svo til vinkonu minnar og sagði henni frá þessu og það var brunað í næsta apótek og keypt þungunarpróf og mér sagt að gjöra svo vel að pissa á þetta prik, sem ég geri. Vinkona mín segir við mig að ég þurfi alveg að bíða í nokkrar min eftir niðurstöðum þannig ég kæmi bara fram á meðan, en neinei ég var varla búin að standa upp af klósettinu þá eru komnar tvær línur,“ skrifar Dagmar. „Ég vissi strax að ég ætlaði mér að eiga það, fannst ég vera að fá tækifæri til að verða mamma sem ég kannski fengi ekkert aftur. Þar sem ég kemst að þessu milli jóla og nýárs fékk ég ekki tíma hjá kvennsa fyrr en 4 janúar, guð minn góður 10 daga bið eftir að fá staðfestingu á þessu. Ég hélt að þetta ætlaði aldrei að líða en svo er ég búin að komast að því í dag að meðganga er ekkert nema bið!“ Eftir heimsókn til kvensjúkdómalæknis þann 4. janúar síðastliðinn ákvað hún að segja barnsföður sínum frá barninu. Hann tók vægast sagt ekki vel í fréttirnar. „Við vorum ekki í föstu sambandi en vorum búin að vera dingla okkur saman í smá tíma, ég fæ hann til að hitta mig eitt kvöldið til að segja honum þetta og þvílíkt stress sem fylgdi þessu þvi ég vissi ekkert hvernig viðbrögð hans gætu orðið. Ég er alveg sannfærð alla vega um það núna að ég hefði alls ekki getað fengið verri viðbrögð en hann kastaði í andlitið á mér. Maðurinn sem er 27 ára gamall sagðist ekki vilja eignast börn fyrr en hann væri búinn að vera giftur í svona 5 ár og komin í einbýlishús, sagðist vera tilbúin til að borga mér ákveðna upphæð ef ég færi í fóstureyðingu og reyndi eins og hann gat að sannfæra mig um að fara í hana. Og lokaorðin....„Þú átt bara eftir að enda sem spikfeit flíspeysu mamma í blokkaríbúð í fellunum þar sem þú þarft að sofa i stofunni því það er ekki nóg pláss.“,“ skrifar Dagmar og hefur ekki heyrt meira frá barnsföður sínum. „Vonandi einn daginn áttar hann sig á hlutunum hans vegna.“ Í samtali við Lífið á Vísi segist Dagmar hafa fengið jákvæð viðbrögð. „Þetta var minn fyrsti pistill sem ég hef skrifað og kemur framhald af honum inna monroe.is í næstu viku. Tilgangur bumbupistlana er til að vekja upp umræðu á þeirri hlið meðgöngu sem er ekki talað mikið um. Og vá hvað ég bjóst aldrei við þessum viðbrögðum, hef ekkert fengið nema frábær og jákvæð viðbrögð. Vonandi get ég hjálpað mörgum og þá sérstaklega verðandi mömmum í sömu stöðu og ég er í.“ Pistilinn má lesa í heild sinni hér.
Mest lesið „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið Fólk eigi ekki að vera feimið við sleipiefnið Heilsa Melabúðin fagnar sjötíu árum Lífið „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Lífið Fleiri fréttir Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Sjá meira