Kæst og kæfandi skata á Þorláksmessu Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 23. desember 2014 11:30 Mörgum þykir skata herramannsmatur. Vísir/Valli
Mörgum þykir skatan herramannsmatur en aðrir eru ekki eins hrifnir og er það oft lyktin sem veldur. Skötulykt er sérstök og mörgum þykir hún jafnvel yfirþyrmandi, hún sest gjarnan í föt og staldrar lengur við í húsakynnum en fólk vill. Af þessum sökum hafa margir skötuunnendur brugðið á það ráð að borða hana annars staðar en heima og þannig slegið tvær flugur í einu höggi, fengið að snæða vel kæsta skötu án þess að lyktin setjist í jólagjafirnar. Hægt er að melda sig í skötuveislur á ýmsum stöðum meðal annars á veitingastöðum, bifreiðaverkstæðum og hjá björgunarsveitum. Björgunarsveitin Björg á Suðureyri býður til skötuveislu klukkan sex í húsnæði sveitarinnar. Einnig verður boðið upp á saltfisk og fólk hefur kost á því að kaupa flugelda af björgunarsveitinni fyrir áramótin. Blásið verður til árlegrar skötuveislu Tækniþjónustu bifreiða í Hjallahrauni 4 í Hafnarfirði, en þetta er í tíunda sinn sem skötuveisla er haldin á verkstæðinu. Herlegheitin byrja klukkan fimm og stendur yfir svo lengi sem birgðir endast. Allir eru velkomnir og boðið verður upp á skötu beint frá Bolungarvík. Íslenski barinn í Ingólfsstræti er einn af þeim veitingastöðum sem reiðir fram skötuhlaðborð í dag. Á boðstólum verður mild og sterk skata fyrir þá hugaðri en einnig verður boðið upp á saltfisk fyrir þá sem einungis vilja njóta lyktarinnar. Hægt er að panta borð í síma 517-6767.Boðið verður upp á skötu á Eyrarbakka.Vísir/ValliÍ Rauða húsinu á Eyrarbakka verður haldin skötuveisla. Kjörið er fyrir höfuðborgarbúa að bregða undir sig betri fætinum og kíkja í Rauða húsið í skötuveislu. Borðapantanir eru í síma 483-3330.
Mest lesið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Depp í viðræðum um endurkomu sem Jack Sparrow Bíó og sjónvarp „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Lífið samstarf Fleiri fréttir Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Sjá meira