Dómurunum í „leikhúsi fáranleikans“ ekki refsað | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 5. mars 2014 18:33
Evrópska handknattleiksambandið ætlar ekki refsa dómarapari frá Aserbaídjan sem frekar augljóslega hagræddi úrslitum í leik HC Zomimak frá Makedóníu og Århus frá Danmörku í þriðju umferð EHF-bikarsins í lok nóvember á síðasta ári. Árósaliðið vann fyrri leikinn í Danmörku, 29-26, en tapaði þeim síðari, 33-24, og einvíginu samanlagt, 59-53. Eins og má sjá í meðfylgjandi myndbandi var dómgæslan langt því frá eðlileg og dönsku leikmennirnir lamdir í spað allan leikinn. „Það er ekki hægt að lýsa því sem þarna gekk á öðruvísi en með því að segja að þetta hafi verið svindl. Það var sorglegt að horfa upp á þetta,“ sagði Erik Veje Rasmussen, þjálfari Århus, eftir leikinn. „Við vorum fíflin í leikhúsi fáranleikans og við höfðum ekkert að segja um framgang mála. Það hefði mátt gefa að minnsta kosti tíu rauð spjöld í þessum leik.“ Dönsku leikmannasamtökin sendu EHF bréf eftir leikinn og óskuðu svara, að því fram kemur á vef leikmannasamtaka Íslands. „EHF mun ekki aðhafast frekar hvað varðar dómarana í umræddum leik. Leikurinn var spilaður eftir bókinni,“ var svar evrópska handknattleikssambandsins en íslensku leikmannasamtökin segja niðurstöðuna vera „hneyksli.“ Niðurstaðan kemur dönsku samtökunum ekkert á óvart. „Niðurstaða EHF sannar að trúverðugleiki EHF er enginn. Það sjá allir að þarna er á ferð hagræðing úrslita í sinni verstu mynd. EHF ætlar ekki að refsa dómurunum eða eftirlitsmönnum leiksins. Þetta er sorglegt fyrir okkar íþrótt. EHF verndar ekki íþróttina eins og það ætti að gera,“ segir m.a. í yfirlýsingu dönsku leikmannasamtakana. Íslensku leikmannasamtökin lýsa yfir stuðningi við kollega sína í Danmörku. „Greinilegt er að í umræddum leik var úrslitum hagrætt, trúverðugleiki EHF er lítill eftir þessa niðurstöðu,“ segir á vef samtakanna. Hér að ofan má sjá myndbrot úr umræddum leik. Leikmenn danska liðsins eru í appelsínugulum búningum.
Handbolti Tengdar fréttir Var dómurunum mútað? | Myndband Forráðamenn danska liðsins Århus eru æfir af reiði eftir að liðið féll úr leik í EHF-bikarnum á afar vafasaman hátt. 3. desember 2013 19:10 Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Formúla 1 Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Sport Meiddist í Portúgal Enski boltinn Gylfi með til Eistlands Fótbolti Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Sjá meira
Var dómurunum mútað? | Myndband Forráðamenn danska liðsins Århus eru æfir af reiði eftir að liðið féll úr leik í EHF-bikarnum á afar vafasaman hátt. 3. desember 2013 19:10