Farþegar í hugarangri á Keflavíkurflugvelli Heimir Már Pétursson skrifar 25. desember 2014 11:23 vísir/gva
Farþegar Turkish Airlines eyddu hluta jólanna óvænt á Íslandi eftir að flugvél þeirra á leið frá Mumbai á Indlandi til Chicago í Bandaríkjunum lenti á Keflavíkurflugvelli á Þorláksmessu. Farþegarnir voru í fyrstu látnir sitja um borð í flugvélinni í þrjár klukkustundir eftir að lent var án skýringa. En eftir það fengu þeir að fara inn í flugstöðina. Indversk fjölskylda segir á vefsíðunni Mid-Day að skortur á upplýsingum til þeirra sem og ættingja sem biðu þeirra í Chicago hafi valdið þeim miklu hugarangri. Ættingjar í Bandaríkjunum hafi óttast að flugvélinni hefði verið rænt en eftir nokkrar klukkustundir fengu þeir þær upplýsingar að fluginu hefði verið aflýst. Farþegunum gekk erfiðlega að ná símasambandi við fólkið sitt í Bandaríkjunum og enginn var til svara hjá flugfélaginu. Eftir nokkurra klukkustunda dvöl í flugstöðinni var fólkinu ekið á hótel og flugvélin fór síðan héðan í gær vestur um haf. Seint og um síður gáfu talsmenn flugfélagsins þá skýringu á þessari óvæntu lendingu í Keflavík að farþegi hefði veikst um borð.
Mest lesið Forsetavaktin: Sjöundi forseti lýðveldisins verður kjörinn Innlent Bein útsending: Kosningasjónvarp Stöðvar 2 Innlent Notuðu piparúða á mótmælendur Innlent „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Innlent Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Innlent Mætti á kjörstað en fékk þau svör að hún væri búin að kjósa Innlent Ólík sýn á hvort Ísland eigi að styðja vörn Úkraínumanna Innlent Tívolíbomba hefði getað skapað stórhættu Innlent Jón Gnarr mjög bjartsýnn: „Fyrsti krúnurakaði rauðhærði forsetinn“ Innlent Maðurinn sem féll í Fnjóská fannst látinn Innlent Fleiri fréttir Fjöldi loftárása á orkuver víðsvegar um Úkraínu Friðartillaga Ísraela sem Biden kynnti virðist fá hljómgrunn „Við búum í fasísku ríki“ Segjast hafa skotið á flugmóðurskip eftir loftárásir Þarf að greiða fyrrverandi 137 milljarða í kjölfar framhjáhalds Ólíklegt að Trump fari í fangelsi Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Bakhjarlar Úkraínu leyfa árásir í Rússlandi Heimilar notkun vopna frá Bandaríkjunum á rússneska grund Trump sakfelldur fyrir skjalafals í þagnargreiðslumáli Veita katalónskum aðskilnaðarsinnum sakaruppgjöf Stígur ekki til hliðar vegna umdeildra fána Gæsir og steggir að buga bæjaryfirvöld sem banna nekt og typpabúninga Svörtum vísað frá borði þegar kvartað var undan líkamslykt Ísraelsmenn taka yfir landamærin að Egyptalandi Flugvélin féll um 54 metra á fimm sekúndum Kviðdómendur leggjast undir feld í dag Gefa Úkraínumönnum eftirlitsflugvélar Útnefna Biden rafrænt til að koma honum örugglega á kjörseðilinn Fær ekki að bjóða sig fram fyrir Verkamannaflokkinn Þingmeirihluti ANC í hættu í Suður-Afríku Íbúar varaðir við rusl- og skítabelgjum frá Norður-Kóreu Segja árásir og aðgerðir Ísrael enn innan „rauðu línanna“ De Niro kallaði Trump skrímsli fyrir utan dómshúsið „Við höfum ekkert“ Ógiltu neitunarvald forseta til að koma fjölmiðlalögum í gegn Biðst afsökunar á ummælum um „faggaskap“ Yfir fimmtíu stig í hitabylgju í Pakistan Pólverjar víggirða landamærin í austri Forseti Perú kærður fyrir mútuþægni Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins Sjá meira
Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins